Elías Pétursson ætlar að leggja til við bæjarstjórn Grindavíkur að líkamsleifar Lúðvíks bróður hans verði grafnar upp úr sprungunni sem hann féll niður í janúar 2024. Hann vann við að fylla í sprunguna þegar hann hvarf.
Elías kveðst í færslu á Facebook hafa snemma sagt öruggara að grafa niður að sprungunni frá hlið og þaðan að þeim stað þar sem líklegast er að Lúðvík liggi. Ekki verið ráðist í niðurrif hússins við Vesturhóp 29 eða fyllingu sprungunnar fyrr en reynt hafi verið til þrautar.
Þá þurfi enginn að leggja sig í þá hættu sem fylgir því að síga niður í sprunguna heldur vinna jarðvegsverkefni sem vitaskuld krefjist góðs skipulags og varfærni.
„Enginn á að leggja líf sitt í óþarfa hættu til að sækja Lúlla. Það höfum við aldrei beðið um og munum aldrei biðja um,“ segir Elías. „Ömurlegt verk, en jarðvinna engu að síður,“ segir Elías og rifjar upp að hann hafi í upphafi ekki talið sig í stöðu til að leggjast gegn leit með sigmönnum.
„Nú hefur það verið reynt. Leiðin sem ég hef lagt til hefur hins vegar aldrei verið metin. Hún var talin ótímabær… hún var tímabær þá og er það svo sannarlega nú,“ segir Elías.
Hann hafi áratugum saman unnið við jarðvinnu og verklegar framkvæmdir og hafi þegar í ágúst 2025 hvatt bæjarstjórnina til að hafa forgöngu um að Lúðvík yrði grafinn upp en fengið þau svör að það væri ekki á forræði bæjarins.
Við leitina að Lúðvík 27. október fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar hans væri að finna, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Því var ákveðið að leit skyldi hætt.
Eftir að hafa sex sinnum æskt dómsmálaráðherra svara kom á daginn að lögreglustjóri tæki ákvörðun um leit og að verkfræðistofan COWI hafi lagt til að leitin yrði gerð í áföngum.
„Ef engar vísbendingar finnast með myndavélinni um hvar líkamsleifar Lúðvíks gæti verið að finna, þarf að meta hvort halda eigi leit áfram og þá hvaða skref væru tekin næst.“ Þrátt fyrir það hafi eftir leitina í októberlok komið á daginn að aðeins hefði verið beitt sjónskoðun og myndavélum.
Fjölskyldunni hafi ekki verið gerð grein fyrir því að frekari áfangar hefðu aðeins komið til greina fyndist eitthvað.
Líklegast sé að Lúðvík liggi í hraunhaug á 13 til 16 metra dýpi undir jarðvegsþjöppunni sem hann var að vinna með þegar jörðin gaf sig og því séu litlar sem engar líkur á að sjónskoðun og myndavélar nýtist. Það hljóti að hafa legið fyrir þegar lagt var af stað.
Elías segist skilja þá hugsun að best sé að leyfa Lúðvík að hvíla þar sem hann er. „En Lúlli valdi sér ekki þennan stað. Hann var að vinna. Börnin hans eiga rétt á að fá að kveðja föður sinn og fylgja honum til grafar. Það er sú lúkning sem við biðjum um, í einum hluta þessa ömurlega máls.“
Elías segir endurheimt líkamsleifa Lúðvíks öðruvísi en þegar maður fellur útbyrðis á sjó, enda sé vitað hvar hann féll og hvar hann að líkindum liggur.
„Þetta er því ekki spurning um að finna hann … heldur um að sækja hann,“ segir Elías og bætir við að fjölskyldan gefist aldrei upp, svo lengi sem stætt sé og mögulega aðeins lengur.
Elías þakkar jafnframt þeim sem stóðu vaktina á vettvangi og sérstaklega þeim sem sigu niður í sprunguna, það þarfnist hugrekkis og hafi sérstaklega verið gert fyrir fjölskyldu Lúðvíks.
