Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra. Þingmenn stjórnarandstöðu fullyrða enn að hann hafi sagt þinginu ósatt.
Þingfundur hófst á hálftíma umræðu þar sem þingmenn stjórnarandstöðu sökuðu ráðherra ríkisstjórnarinnar um óboðleg vinnubrögð og virðingarleysi. Tilefnið var að aðeins þrír ráðherrar af ellefu voru til svara í óundirbúnum fyrirspurnatíma en þeir voru átta á mánudag.
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokks bar síðan upp síðustu fyrirspurnina, fyrir hönd stjórnarandstöðuflokkanna, til utanríkisráðherra. Tilefnið var skýrsla fjármálaráðherra í gær um málefni Landsvirkjunar og umræðu síðustu vikna um samskipti stjórnar, ráðherra og fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar.
„Ég vil bara fá að vita þetta. Styður hæstvirtur utanríkisráðherra, formaður Viðreisnar, hæstvirtan fjármálaráðherra í þessu máli? Styður hæstvirtur utanríkisráðherra framgöngu hæstvirts fjármálaráðherra í þessu máli?“
Þorgerður Katrín ítrekaði að Daði Már hefði við byrjað að skipa faglegar stjórnir en ekki pólitískar þegar hann kom í fjármálaráðuneytið, til þess að hafa armslengd frá áður pólitískt skipuðum stjórnum.
Þess má geta að Daði Már er ráðherra utan þings.
„Hann fór vel yfir það í sérstöku umræðunni í gær hvernig þessum málum er háttað og já, að sjálfsögðu styð ég Daða Má Kristófersson sem fjármálaráðherra. Hann hefur staðið sig með eindæmum vel.“
Hún segir hann hafa verið ábyrgan og svarað fyrirspurnum af einlægni. „Hann hefur komið hér og sinnt og svarað af einlægni þeim fyrirspurnum sem hefur verið beint til hans“
