Fjölmenni var mætt á undirritun Þristavinafélagsins, umhverfis- og orkumálaráðherra, Flugsafns Íslands og Lands og Skógar á viljayfirlýsingu um framtíðarheimili Þristsins.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að vélin verði í góðum höndum á Akureyri.
„Við erum í rauninni bara að formgera það að varðveisla á þessum einstaka safngrip, þessari stórmerkilegu flugvél, sem á sér mikla sögu, að ábyrgðin og eignarhaldið færist alfarið yfir til Flugsafns Íslands. Ég held að vélin sé í mjög góðum höndum hér.“Framtíðarheimili einnar merkustu flugvélar Íslandssögunnar verður væntanlega á Akureyri. Þristavinafélagið segir mikilvægt að tryggja vörslu hennar um aldur og ævi.
DC-3 vélin, sem hefur nýst þjóðinni með margvíslegum hætti, kom fyrst til landsins árið 1943. Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafnsins, segir Þristinn laða að þúsundir gesta á ári hverju.
„Fyrst og fremst er þetta mikil viðurkenning fyrir safnið, hversu mikið traust ríkið sýnir okkur í þessum efnum. Að treysta okkur fyrir varðveislu þessarar mikilvægu flugvélar í íslenskri flugsögu. Það eru mjög margir sem bera tilfinningar til þessarar vélar og eiga sögu sem tengist henni eða hafa komið að varðveislu hennar á einn eða annan hátt,“ segir Steinunn María.
Flugmenn höfðu gaman af því að fljúga vélinni
Sveinn Runólfsson, fyrrum landgræðslustjóri, fór þúsundir flugferða með Þristinum en Þristurinn þjónaði Landgræðslu Íslands í yfir 30 ár. Hann segir að tugir flugmanna hafi flogið vélinni í sjálfboðavinnu og haft gaman af.
„Flugmennirnir höfðu óskaplega gaman af að fljúga, ekki bara tölvuflug heldur fljúga vélinni og þeir voru svo kátir með það að ef eitthvað kom upp á í fluginu gátu þeir sturtað úr vélinni á 4 sekúndum en þeir máttu það ekki með farþega.“
Hann er ekki bjartsýnn á að Þristurinn eigi eftir að hefja sig á loft einu sinni enn en vonar það besta.
„Við eigum þá von í brjósti en ég er nú ekki bjartsýnn, en við bíðum eftir að einhver ríkur aðili komi og borgi brúsann en við bíðum og sjáum.“
