Tíundi sakborningurinn í Straumsvíkurmálinu var leiddur fyrir dómara í kvöld og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. desember. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn kom í lögreglufylgd til landsins í dag með flugi frá Rúmeníu. Maðurinn er ásamt níu öðrum ákærður fyrir innflutning á yfir 100 kílóum af kókaíni í sjókistu súrálsskips sem kom til hafnar í Straumsvík í júní.
Hann kom hingað með farþegaferjunni Norrænu í fyrri hluta júnímánaðar, á sendiferðabíl fullum af köfunarbúnaði.
Þetta var fáeinum vikum áður en hinir sakborningarnir notuðu búnaðinn til að kafa eftir 106 kílóum af kókaíni sem falin voru í sjókistu búlgarska súrálsskipsins Koznitza, þar sem það lá við bryggju í Straumsvíkurhöfn.
Maðurinn var þá floginn úr landi þá og eftir að hinir níu voru handteknir var gefin út alþjóðleg handtökuskipun á hendur honum. Hann var handtekinn í Rúmeníu fyrir nokkrum vikum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Hinir níu sakborningarnir neituðu allir sök þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Áætlað er að aðalmeðferð í málinu hefjist í Héraðsdómi Reykjaness 2. desember.
