Tók sér frí úr vinnu til að spila

Aðdáendur tölvuleiksins Grand Theft Auto glöddust þegar leikur númer sex leit dagsins ljós eftir þrettán ára bið. Margir byrjuðu að spila strax þegar leikurinn kom út á miðnætti og sumir tóku sér jafnvel frí úr vinnunni til að spila.

„Ég tók mér frí í dag,“ segir Arnar Freyr Tómasson, tökumaður og hlaðvarpsstjórnandi Checkpoint Podcast. „Ég er sjálfstætt starfandi þannig að ég gat bara verið duglegur að vinna síðustu vikur til að eiga frí þennan dag.“

„Þessi leikur er náttúrulega búinn að vera í 13 ár í bígerð og maður er bara búinn að bíða í 13 ár í rauninni frá því að síðasti leikur kom út,“ segir Arnar Freyr. Hann segir af og frá að ofbeldið í leiknum hafi haft neikvæð áhrif á hann. „Þetta er ekkert eitthvað sem maður tekur með sér út í lífið: Ég ætla að vera eins og þessi gaur.“