Skiptar skoðanir eru á ákvörðun borgarstjórnar um að loka fyrir heitt vatn og rafmagn í hjólhýsabyggð við Sævarhöfða þegar vetur er að ganga í garð. Aðeins fjögur eru eftir í byggðinni. Þau dvelja þar í leyfisleysi.
Fjallað var um hjólhýsabyggðina í Kastljósi í kvöld. Þar var meðal annars fjallað um mann sem hefur búið í hjólhýsi síðan 2017. Hann hefur ítrekað sótt um íbúð hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar en ávallt fengið neitun. Hann segir að kalt hafi verið í hjólhýsinu undanfarna daga og hitinn farið undir frostmark.
Einnig var rætt við Einar Þorsteinsson formann borgarráðs og Silju Sóleyju Birgisdóttur borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins.Formaður borgarráðs segir umræðuna um hjólhýsagarðinn við Sævarhöfða vera hápólitíska. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins segir viðhorf til byggðarinnar byggja á fordómum og vill að skrúfað verði aftur frá rafmagni og heitu vatni fram á vor.
Einar segir umræðuna um hjólhýsabyggð við Sævarhöfða vera hápólitíska og hugmyndafræðilega. Hann vill beina þeim sem eftir eru í byggðinni inn í félagslega kerfið, hvort sem það er Reykjavík eða annars staðar.
„Að einhverju leyti er þetta hugmyndafræðileg og pólitísk barátta ákveðinna stjórnmálaflokka sem vilja búa til þetta sem húsnæðisúrræði.“
Hann segir að horfa þurfi til lengri tíma og spyrja „hvernig samfélag viljum við búa til?“
„Ég held að fólk vilji almennt ekki að börn alist upp við óboðlegar aðstæður, í hjólhýsagörðum, og að eldra fólk eyði elliárunum í slíkum aðstæðum.“
Hann segir enga samfélagslega sátt um það að taka eigi frá pláss fyrir hjólhýsabyggðir.
Viðhorf til hjólhýsabyggða byggt á fordómum
Silja segir að hún vilji sjálf ekki að börn búi í hjólhýsabyggðum. Það sé þó af öðrum ástæðum sem hún fór ekki nánar út í. Hún segir viðhorf til fólks sem búi í hjólhýsabyggðum bundið við fordóma.
„Þetta er ekki fólk sem er einhver hyski eða neitt þannig. Þetta fyrirfinnst í flestöllum öðrum þjóðum og ég sé enga ástæðu fyrir því að það væri ekki hægt að gera þetta hér. Ef þetta væri einhver gífurleg stækkun þá undirstrikar það meiri vanda á húsnæðismarkaðnum sem er hérna á Íslandi. Þessi byggð hefur verið hérna í yfir 10 ár og hefur ekki verið vandamál.
