Tryggja verði öryggi ferðamanna áður en gjaldtaka hefst við Gullfoss

Formenn björgunarsveita í uppsveitum Árnessýslu eru uggandi yfir því að fyrirhugað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn við Gullfoss gæti beint fleiri ferðamönnum að austurbakka Hvítár þar sem öryggisinnviðir hafa ekki enn verið byggðir upp.

Landið sé í einkaeigu og aðstaða til að taka á móti miklum fjölda ferðamanna ekki fyrir hendi.

Til stendur að leggja gjaldið á þá erlendu ferðamenn sem fara Gullna hringinn, á Þingvelli, Gullfoss og Geysi frá og með fyrsta maí á næsta ári. Kristinn Bjarnason, formaður Björgunarsveitar Biskupstungna, segir lítið öryggi á austurbakkanum.

„Þar eru í rauninni engir merktir göngustígar eða neinar varnargirðingar eða neitt sem aftrar fólki frá því að fara út á brún.“ Aðspurður segir Kristinn að ákjósanlegast væri að stjórnvöld frestuðu gjaldtöku.

„Það væri auðvitað ákjósanlegast en ef af þessu verður að gera okkur reiðubúin undir það að umferðin getur orðið töluvert aukin þarna austan megin.“ Ekkert sé tilbúið fyrir þann fjölda ferðamanna sem gætu séð sér leik á borði og farið þangað.

Óljóst sé hver ferðamannastraumurinn gæti orðið. Þótt ábyrgð fararstjóra sé vitaskuld nokkur en rétt sé að muna að hver og einn beri mesta ábyrgð á sjálfum sér. „Við erum líka í slysavörnum, björgunarsveitirnar og viljum að þetta verði í lagi.“

Björgunarsveitirnar segja í tilkynningu að við Gullfoss hafi verið byggð upp aðstaða vestan Hvítár með öryggi og stýringu á umferð gesta í forgrunni.„Öryggi ferðamanna verður að vera tryggt áður en breytingar sem geta haft áhrif á hegðun ferðamanna eru settar í framkvæmd. Einnig þarf að kanna hvort vegir, aðgengi og fjarskipti tryggi að hægt sé að koma fólki til aðstoðar ef slys verður. Án öruggra fjarskipta getur verið erfitt að kalla eftir hjálp og samhæfa viðbrögð.“

Formennirnir telja að fáeinar færslur áhrifavalda eða ákvörðun ferðaskipuleggjenda geti aukið umferð um austurbakkann á skömmum tíma. „Þegar gestum fjölgar skyndilega á óundirbúnu svæði getur skapast alvarleg hætta áður en hægt er að bregðast við. Við viljum koma í veg fyrir að fólk slasist eða lendi í lífshættu.“