Tveir erlendir ferðamenn farþegar bílsins sem endaði í Kleifá

Farþegar bílsins sem endaði í Kleifá í morgun eru erlendir ferðamenn. Ekki er vitað um líðan þeirra. Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Vesturlandi, segir að útkall hafi borist klukkan hálf ellefu. Aðrir vegfarendur tilkynntu slysið til lögreglu.

Bíllinn endaði í Kleifá stuttu frá Vatnaleið. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Tveir erlendir ferðamenn voru í bílnum sem hafnaði í Kleifá í dag. Ekki er vitað um líðan þeirra en báðir voru fluttir á Landspítalann, annar í þyrlu Landhelgisgæslunnar og hinn með sjúkrabíl. Lögregla rannsakar tildrög slyssins.

„Annar farþeginn komst út, hinn ekki og næst síðan út þegar björgunarlið kemur á vettvang,“ segir Jónas. Sá sem komst út af sjálfsdáðum var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl en hinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Reykjavík. Ekki er vitað um líðan þeirra. Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka hvað olli því að bíllinn fór út af veginum.

Snæfellsvegi var lokað þangað til klukkan 14:00 í dag á meðan viðbragðsaðilar unnu á vettvangi. Talsverður fjöldi bíla var á veginum áður en hann opnaði aftur.

Erfiðar aðstæður í óvenju straumþungri Kleifá

Björgunarsveitin Elliði segir í færslu á Facebook að fyrir tilviljun hafi einn björgunarmaður verið á ferðinni og var því kominn á vettvang þegar útkall barst.

Hættulegar aðstæður voru fyrir björgunarmenn þar sem Kleifá var óvenju vatnsmikil vegna ofankomu síðustu daga. Bíllinn fór út af austan við ána við enda vegriðsins og endaði í ánni á vesturbakkanum ofan við veginn. Straumþungi var þó svo mikill að bíllinn færðist í gegnum ræsi og staðnæmdist á nokkru dýpi neðan við veginn í talsverðum straumi. Draga þurfti bílinn úr ánni áður en hægt var að aðstoða farþegann úr bílnum.