Ullarverð Ístex til bænda lækkar um meira en 30 prósent á næsta ári, annað árið í röð. Ístex stendur enn í skuld við bændur, en sauðfjárbóndi í stjórn fyrirtækisins hefur trú á að reksturinn fari að taka við sér.
Hvít lambsull í hæsta gæðaflokki, verðmætasta ull bænda, var í fyrra metin á 613 krónur kílóið hjá Ístex. 398 krónur er verð næsta árs. Þetta er tvöfalt minna en fékkst fyrir ullina fyrir þremur árum.
Hvað fá bændur fyrir ullina?
Bændur rýja sauðfjárstofninn sinn minnst einu sinni á ári, eftir að búið er að hýsa fé á haustin. Ullin er klippt af hverri kind og send til vinnslu hjá fyrirtækinu Ístex. Bændur fá greitt fyrir ullina eftir þyngd, gæðum og lit.
Þetta eru verðin sem bændur fengu fyrir hvert kíló í ár – og svo verðin fyrir næsta ár:
Leiðinlegt að verðin lækki en bændur sýna stöðunni skilning
„Bændur eru náttúrulega stærsti hluthafi Ístex og flestir þeir bændur sem maður talar við þeir skilja stöðuna sem Ístex er í og hafa skilning á því að verðið þurfi að lækka meðan er verið að rétta úr rekstrinum,“ segir Þuríður Lillý Sigurðardóttir, sauðfjárbóndi á Sléttu við Reyðarfjörð og situr í stjórn Ístex.
Þuríður segir auðvitað svekkjandi að fá lægra verð annað árið í röð og rekstur á mörgum sauðfjárbúum megi illa við tekjumissi. En ríkisgreiðslur telji mikið líka, svo þó að margar tegundir ullar séu metnar á núll krónur hjá Ístex – fari því fjarri að íslenska ullin sé að verða verðlaus.
Skulda enn 200 milljónir
Skuld Ístex við bændur stendur í dag í 200 milljónum króna, til rúmlega 1.200 bænda.
„Saga Ístex sýnir okkur að þetta hefur gerst áður, það hefur sveiflast upp og niður, gengi fyrirtæksins. En við höfum verið að skoða leiðir til þess að leysa úr þessum lausafjárvanda og reyna að bæta reksturinn. Fyrst og fremst þarf náttúrulega að reyna að bæta hann til lengri tíma, þannig það sé ekki þessi óvissa alltaf“, segir Þuríður.
Margir bændur nýttu boð Ístex um að fá vörur í stað greiðslu – og sauðfjárbændur sem fréttastofa hefur rætt við segjast margir ætla að nýta sér það. Ullarteppi fari í marga jólapakka frá sauðfjárbændum í ár.
Þuríður segir flesta kollega hennar, þrátt fyrir erfiðan ullarmarkað síðustu ár, á því að það sé mikils virði að vinnslan verði áfram hér heima.„Hérna er náttúrulega féð framleitt og það er klippt og ullin er þvegin og unnin og seld í búðunum þannig þetta er líka einstakt. Þó það sé dýrt þá viljum við reyna að halda í það að halda framleiðslunni hérna innanlands.“ umlegacypress.com
