Um 930 ungmenni talin tilheyra hópum sem flokkast sem gengi

Sex prósent ungmenna á aldrinum 13–17 ára á höfuðborgarsvæðinu, um 930 ungmenni, tilheyra vinahópum sem uppfylla skilgreiningu á unglingagengjum samkvæmt nýrri rannsókn íslenskra afbrotafræðinga. Félagsleg jaðarsetning, mismunun og erfiðar fjölskylduaðstæður geta aukið líkur á að ungmenni rati í slæman félagsskap sem mætir alþjóðlegum viðmiðum um unglingagengi. Eftirlit foreldra virðist aftur á móti hafa verndandi áhrif.

Um 930 ungmenni á aldrinum 13–17 ára á höfuðborgarsvæðinu tilheyra vinahópum sem flokkast sem unglingagengi samkvæmt nýrri rannsókn íslenskra afbrotafræðinga.

Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er byggð á gögnum úr íslenska hluta alþjóðlegu rannsóknarinnar International Self-Report Delinquency Study. Rúmlega þrjú þúsund ungmenni tóku þátt í rannsókninni og afbrotafræðingar í yfir þrjátíu löndum söfnuðu gögnum með sambærilegum hætti.

Vísindagrein um niðurstöðurnar birtist í október í Nordisk Tidsskrift for Kriminalvidenskab. Hún er eftir Margréti Valdimarsdóttur, dósent í félags- og afbrotafræði, og Áróru Sigurþórsdóttur afbrotafræðing. Rannsóknin á rætur að rekja til meistararitgerðar Áróru um hópamyndanir og unglingagengi.

„Okkar rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og gefur mjög góða yfirsýn yfir þá þætti sem tengjast gengjaþátttöku,“ segir Margrét.

Fjallað er um unglingagengi í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem ber heitið Innra öryggi Íslands þar sem vísað er í skýrslu ríkislögreglustjóra um ofbeldi barna frá 2024 sem sýnir fjölgun á alvarlegum ofbeldisbrotum meðal ungmenna og að yngri börn komi æ oftar við sögu. Þá hafi færst í aukana að ungmenni séu hagnýtt í tengslum við skipulagða brotastarfsemi.

Gagna var aflað með nafnlausum spurningalistum sem lagðir voru fyrir í skólum.

Ungmennin voru meðal annars spurð hvort þau tilheyrðu vinahópi sem hittist reglulega utan heimilis með það að markmiði að brjóta af sér saman. Einnig var spurt hversu lengi hópurinn hefði verið til og hvort brotastarfsemi væri samþykkt innan hans.

Margrét segir að hugtakið unglingagengi hafi ekki endilega sömu merkingu í huga ungmenna hér á landi og í Bandaríkjunum.

„Ef þú spyrð krakkana í Evrópu hvort þau tilheyri unglingagengi þá segja þau nei, vegna þess að þau líta ekki á hópinn sinn sem gengi. Það virðist ekki vera hluti af menningunni hér í Evrópu að krakkar líti á sig og hópinn sinn sem gengi, þrátt fyrir að hópurinn hafi öll sömu einkenni og gengi og geti verið jafn skaðlegur og hættulegur.“

Krakkar sem tilheyra unglingagengjum séu mun líklegri til að brjóta meira af sér en aðrir og brotin séu líka alvarlegri, hvort sem þeir líta svo á að vinahópurinn sé gengi eða ekki.

Gengi íslensku krónunnar?

Margrét segir að þegar rannsóknarteymið fór í skólana hafi sum ungmennin spurt hvað átt væri við með orðinu gengi.

„Í einhverjum tilfellum var það vegna spurningarinnar: „Ertu í gengi?“ Þá spurðu þau hvort verið væri að tala um gengi íslensku krónunnar. Þá sá ég að þetta orð hafði enga sérstaka merkingu fyrir þeim.“

Mismunun og erfiðar heimilisaðstæður tengjast þátttöku í gengjum.

Niðurstöðurnar benda til þess að félagsleg jaðarsetning og erfiðar aðstæður í lífi ungmenna tengist auknum líkum á þátttöku í unglingagengjum.

Þar má meðal annars nefna reynslu af mismunun, að hafa verið beitt ofbeldi og erfiðleika innan fjölskyldu.

Rannsóknin sýndi jafnframt að ekki var marktækt samband milli erlends bakgrunns ungmenna og gengjaþátttöku hér á landi.

Margrét segir að rannsóknir í öðrum norrænum borgum hafi hins vegar sýnt að ungmenni með erlendan bakgrunn séu líklegri til að tilheyra slíkum hópum, meðal annars vegna mismununar, fordóma og reynslu af félagslegri útilokun.

„Niðurstöður rannsókna á Norðurlöndum sýna það en okkar niðurstöður sýna að bakgrunnur hefur ekki marktæk tengsl við gengjaþátttöku. Það eru aðrir þættir.“

Þörf fyrir að tilheyra

Rannsakendur benda á að ungmenni geti leitað í slíka hópa vegna þess að þeim finnist þau félagslega útilokuð eða einangruð og skorti stuðning í nánasta umhverfi.

„Unglingar sækja í svona hópa af því að þeir upplifa að þeir tilheyri ekki samfélaginu, að þeir séu á einhvern hátt á skjön við það. Þeim finnst þeir félagslega útilokaðir og einangraðir og eru að sækja í félagsskap þar sem þeir geta tilheyrt,“ segir Margrét.

Margrét segir að sum ungmenni sem leita í slíka hópa hafi jafnvel verið lögð í einelti eða beitt ofbeldi og séu að leita eftir vernd.

Í rannsókninni voru ekki aðeins skoðaðar aðstæður ungmennanna sjálfra heldur einnig félagslegt umhverfi þeirra.

Áróra segir mikilvægt að grípa inn í aðstæður ungmenna sem eru í áhættuhópi og tryggja að þau fái þann stuðning sem þau þurfa.

„Eftirlit foreldra er mjög verndandi þáttur. Ekki öll börn sem tilheyra gengi á þessum aldri verða einhverjir rosalegir afbrotamenn í framtíðinni en þau eru líklegri til að brjóta af sér. Ekki aðeins er líklegra að ofbeldið verði alvarlegra heldur einnig langvarandi og að það teygist inn í fullorðinsárin. Sum börn brjóta kannski eitthvað af sér á unglingsaldri og svo hættir það bara,“ segir Áróra. Því skipti miklu máli að grípa inn í snemma og veita ungmennunum þann stuðning sem þau þurfa. umlegacypress.com


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.