Umsækjendur þurfa bráðum að þéna nærri tvöfalt meira á mánuði til að fá dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt verði áform dómsmálaráðherra að veruleika.
Fjöldi umsagna um reglugerðina í samráðsgátt stjórnvalda tvöfaldaðist á hálfum sólarhring áður en frestur rann út á miðnætti og varð 1.823. Það er, eftir því sem fréttastofa kemst næst, næstmesti fjöldi umsagna sem borist hefur í samráðsgátt stjórnvalda á eftir hagræðingartillögum almennings.
Verði reglugerðin samþykkt verður framfærslukrafa einstaklings rúmlega 500 þúsund krónur á mánuði. Það er 93% hærra en nú og nokkuð hærra en lægstu laun sem kveðið er á um í íslenskum kjarasamningum. Í fyrra voru tæp 2% launafólks í fullu starfi með laun undir 500 þúsund krónum samkvæmt Hagstofunni.
Íslendingar eru ríflega helmingur þeirra sem skiluðu umsögn um reglugerðina og margir benda á að þeir gætu sjálfir aldrei uppfyllt þessi skilyrði fyrir dvalarleyfi í eigin landi. Fjölmargir innflytjendur, sem þegar búa og starfa á Íslandi, lýsa miklum áhyggjum af stöðu sinni verði reglugerðin að veruleika.
Telja kröfurnar óraunhæfar fyrir nema og listamenn
Margar umsagnir snúa að áhyggjum af möguleikum nemenda til að fá dvalarleyfi á Íslandi. Samkvæmt reglugerðinni þurfa nemar að þéna 75 prósent af heildarupphæðinni eða rúmlega 375 þúsund krónur á mánuði.
Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands eru meðal þeirra sem hafa skilað umsögn í samráðsgátt og gagnrýnt áformin.
Listamenn eru annar hópur sem fólk telur að sé ólíklegur til að uppfylla framfærsluskilyrðin.
Bandalag íslenskra listamanna bendir á í sinni umsögn að ekki einu sinni listamenn á listamannalaunum gætu uppfyllt skilyrðin fyrir dvalarleyfi eða íslenskum ríkisborgararétti. Bandalagið segir að þessi umfangsmikla hækkun kalli á ítarlegt mat á áhrifum hennar á ólíka hópa samfélagsins.
Þriðji hópurinn sem er ítrekað nefndur í samráðsgáttinni eru fjölskyldur og pör þar sem annar aðilinn hefur ríkisborgararétt utan EES. Margir lýsa áhyggjum af því að verði reglugerðin að veruleika muni það splundra fjölskyldum.
Framfærsluviðmið einstaklinga hækka 93% en þau hækka enn meira fyrir einstaklinga og fjölskyldur með börn. Framfærsluskilyrði fyrir einstæða foreldra með tvö börn og hjón með þrjú börn hækka yfir 200%.
