Úrvinnslugjald á heyrúlluplast gæti hækkað um 92,3%

Úrvinnslugjald á heyrúlluplasti gæti verið að hækka um 92,3% samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í dag er úrvinnslugjaldið, það gjald sem er ætlað að standa undir söfnun og úrvinnslu plastsins þegar það hefur lokið hlutverki sínu, 65 krónur á kílóið. Verði af hækkuninni verður það 125 krónur.

„Ég held að bændur séu hlynntir því að úrvinnslugjaldið geti staðið undir úrvinnslunni, en við þurfum þá að fá einhverjar sannanir fyrir því að gjaldið renni til þess raunverulega,“ segir Þórólfur Ómar Óskarsson, bóndi í Grænuhlíð í Eyjafirði.

Árið 2021 var úrvinnslugjald per kíló 28 krónur. Hækkunin hefur því verið brött undanfarin fimm ár og kemur niður á bændum.

„Þetta eru auðvitað bara aukin útgjöld sem skila sér í lægri framlegð af vörunni sem ég er að framleiða sem er mjólk og kjöt fyrir almenning. Mér finnst það bara bagalegt.“

Geta heyjað í turna og gryfjur

Áætla má að íslenskir bændur noti um 1800 til 2500 tonn af heyrúlluplasti árlega. Bara hann Þórólfur notar rúmlega tvö tonn.

Verði hækkunin að veruleika eru það aukin útgjöld í úrvinnslugjald sem nema 110-150 milljónum króna fyrir bændur.

En hafa bændur einhvern annan valkost en að nota plastið og heyja í rúllur?

„Þú getur sett í svona turn eins og ég er með á bak við. Þeir standa sums staðar þessir turnar en yfirleitt eru þeir tómir – því það er dýrt að halda búnaðnum úti fyrir. Ja, þeir eru flestir frekar litlir. En síðan eru menn að heyja í stæður eða gryfjur og það er aðeins að aukast og er raunverulegur möguleiki,“ segir Þórólfur.Úrvinnslugjald á plast sem bændur nota til að pakka heyrúllum á að hækka um 92,3 prósent. Gjaldinu er ætlað að standa undir söfnun og úrvinnslu plastsins þegar það hefur lokið hlutverki sínu.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.