„Ég var mjög snemma farinn að spila tölvuleiki og vafra um á netinu. Eins og allir vita er maður aldrei langt frá klámi þegar maður er á netinu. Ég var einhvers staðar í kringum þrettán ára aldurinn þegar ég komst fyrst í kynni við slíkt.“
Þetta segir karlmaður sem stundaði það að horfa á barnaníðsefni á netinu. Hann er ekki greindur með barnagirnd en lýsir því hvernig áhorf hans á klám varð öfgafyllra með hverju árinu. Maðurinn treysti sér ekki til þess að koma fram undir nafni. Viðtal við hann birtist í ítarlegri umfjöllun Kveiks um barnaníðsefni í gær.
Hann segir að honum hafi þótt spennandi að horfa á klám á netinu. „Ég var að gera eitthvað sem var bannað og gaf mér mikið adrenalín. En það var líka strax skömm sem fylgdi því og eitthvað sem átti að fela,“ segir hann.
„Það leið ekki langur tími þar til það var orðinn daglegur vani að horfa á klám. Ég notaði það sem hækju til að slaka á og takast á við stress lífsins.“
Upplifði spennu og adrenalín
Hann segist hafa verið ungur þegar hann fór að leitast eftir því að horfa á myndefni af börnum.
„Það gerðist bara mjög snemma. Mér fannst konurnar vera svo mikið eldri og að það væri miklu eðlilegra að horfa á jafnaldra frekar.“
Hvernig leið þér þegar þú sást það fyrst, manstu hvað þú hugsaðir? Hafðirðu glímt við kynferðislegar hugsanir eða langanir til barna?
„Þetta gaf mér bara sömu tilfinningar og annað klám þá. Mikil spenna, adrenalín og svo skömm. Ég var bara barn sjálfur. Hafði ekki glímt við langanir til barna fyrir. Og það var aldrei það eina sem ég horfði á, heldur var þetta í bland við hefðbundið löglegt efni.“
Hann segist alltaf hafa fundið fyrir skömm eftir áhorfið, en adrenalínfíkn, slökun og óheftur aðgangur að efninu hafi fengið hann til þess að halda því áfram.
„Þetta var þá bara hvað sem innihélt ungar stúlkur, myndir eða myndbönd,“ segir hann, spurður hverju hann sóttist eftir. Hann segist hins vegar hafa vitað að þetta væri rangt, og tilkynnti síðurnar til Google. „Til að gera mér erfiðara fyrir næst,“ segir hann.
Ekkert grín að losa sig undan þessu
Manninum er tíðrætt um áhrifin sem efnið hafði á hann – en engu að síður hélt hann uppteknum hætti í mörg ár.
„Það sem gerist er að tíminn líður og maður eldist en það klám sem þú horfir á helst eins og verður jafnvel meira extreme [öfgakenndara]. Manni tekst að réttlæta þetta fyrir sjálfum sér ótrúlega lengi. Með tímanum þróast dómgreindin og sektarkenndin og maður áttar sig fullvel á því að það sem þú sért að gera sé rangt. En þá er þetta orðinn svo sterkur vani og hækja að það er ekkert grín að losa sig undan því. Og þú trúir ekkert mikið að þú getir það,“ segir hann. Sjálfsmynd hans hafi verið brotin.
„Skömmin verður gríðarleg. Þú ferð að kalla sjálfan þig verðlausa manneskju, sama hvað þú afrekar í lífinu, þá ertu ógeð sem ættir helst að gera öllum greiða og taka þitt líf. Skömmin þróast yfir í þunglyndi.“
Óttaðistu á einhverjum tímapunkti að þú myndir brjóta á barni?
„Já ég gerði það. Sérstaklega ef þetta fengi að halda áfram. Núna myndi ég segja nei, ég hefði tekið mitt líf áður en það myndi gerast.“
Maðurinn ákvað síðan að leita sér aðstoðar.
„Ég fór að leita mér aðstoðar þegar ég var búinn að eignast börn. Mér fannst vera tvær leiðir í boði, annaðhvort myndi ég halda þessu áfram og eyðileggja líf mitt með einhverjum hætti þ.e.a.s. þetta kæmist upp, ég færi í fangelsi, eitthvað í þá áttina eða ég myndi taka mitt líf.
Ég var skíthræddur um að taka þetta skref, hvað ef einhver sæi mig? Kemst upp um þetta allt þegar ég mæti? Fer ég á einhvern lista? Ég komst yfir það því annars yrðu börnin mín líklega án föður bráðlega.“
Hann leitaði til úrræðis sem heitir Taktu skrefið, og er ætlað fólki sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Um sextíu manns leita sér aðstoðar hjá úrræðinu árlega.
„Meðferðin bjargaði lífi mínu,“ segir hann. „Hugsanirnar munu eflaust aldrei hverfa. En þegar þær koma get ég núna spottað þær og ekki látið það skilgreina mig og eyðileggja fyrir mér,“ bætir maðurinn við.
„Í dag lít ég á þetta svolítið eins og fíkniefni og edrúmennska. Hef enga löngun til að horfa á klám lengur nú þegar ég skil áhrifin.“
Styður eyðileggingu sála barna með því að horfa
Hann segir að foreldrar þurfi að fylgjast með og ræða við börn sín um netnotkun. Sjálfur hafi hann verið barn sem hafi villst af vegi.
„Við verðum að fræða börnin okkar um hætturnar á netinu og að vera ekki að tala við eða hitta ókunnugt fólk. En við foreldrarnir verðum að passa að börnin okkar séu ekki sett í aðstæður þar sem ofbeldi getur átt sér stað.“
Er þetta eitthvað sem þú telur þig þurfa að vera meðvitaður um alla ævi?
„Já, ég er hræddur um það, bara eins og þeir sem eiga við fíknisjúkdóm að stríða.“
Hann segist í dag átta sig á alvarleika þess að horfa á barnaníðsefni.
„Þú styður framköllun þessa efnis og eyðileggingu sála barna með því að horfa. Svo ekki sé minnst á skaðann sem þú ert að valda þínu eigin lífi,“ segir hann.
„Í dag finn ég mikið til með þessum börnum og vona að þau leiti réttar síns og komi fólkinu sem bjó til þetta efni í steininn.“
Maðurinn bendir á að hjálpina sé að fá.
„Ég á sálfræðingi mínum lífið að launa.“
