Veðurstofan og Vegagerðin vara við hvassviðri um landið suðaustanvert í nótt og á morgun. Veðurstofan varar við hvössum norðvestan vindstrengjum á Austfjörðum og undir Vatnajökli á morgun sem getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
Í nótt má búast við vindstrengjum um 35 metrum á sekúndu við fjöll allt frá Öræfum og austur að Djúpavogi. Síðdegis á morgun dregur hægt úr vindi en ekki er búist við að lægi fyrr en seint annað kvöld.RÚV / Jóhannes Jónsson
