Þann 18. febrúar 2008 var Haraldur Már Haraldsson 18 ára og nýkominn með bílpróf. Þá var langþráður draumur loks orðinn að veruleika en sá draumur breyttist fljótt í martröð þegar hann olli slysinu sem dró besta vin hans, Þorvald Kristin Guðmundsson, til dauða.
„Við erum sem sagt bara í einhverjum ofsaakstri sem endar á húsvegg, á um 90 kílómetra hraða með þessum afleiðingum, og hann deyr þarna tíu dögum síðar,“ segir Haraldur.Maður sem varð valdur að dauða vinar síns með ofsaakstri vonar að hans reynsla verði til þess að ökumenn taki ekki áhættu í umferðinni. Í dag er minningardagur um þá sem hafa látið lífið í umferðinni.
Stóð eftir fullur sjálfshaturs og sektarkenndar
Þá hafði líf Haraldar breyst til frambúðar. Hann stóð eftir fullur sjálfshaturs og sektarkenndar og sökk í neyslu vímuefna. Hann segist oft hafa óskað þess að geta skipt um stað við vin sinn sem hafi ekki fengið að eldast. Afmælisdagur Þorvaldar er einmitt í dag.
Það var ekki fyrr en eftir að Haraldur varð edrú fyrir nokkrum árum að hann fór að vinna í áfallinu.
„Við berum ekki bara ábyrgð á eigin lífi“
Haraldur vonast til að fá tækifæri til að fræða ungmenni um umferðaröryggi og að hans saga verði til þess að sporna við áhættuhegðun ungs fólks í umferðinni.
„Í augnablikinu gæti þetta verið svo saklaust,“ segir hann. „En það þarf svo ótrúlega lítið til þess að allt fari í vaskinn,“ segir hann.
„Við berum ekki bara ábyrgð á eigin lífi. Við berum ábyrgð á öllum sem eru í umferðinni,“ segir Haraldur.
Tólf hafa látist í umferðarslysum það sem af er ári, þar á meðal fjögur ungmenni í tveimur slysum vegna hraðaksturs. Haraldur segir slysin tvö hafa orðið til þess að hann vildi segja frá sinni reynslu.
Kallaður öllum illum nöfnum eftir slysið
Honum blöskraði hvað fólk leyfði að sér að segja og vera illkvittið í athugasemdum við fréttir af slysunum.
Hann tengdi við það því hann var sjálfur kallaður öllum illum nöfnum eftir slysið sem hann olli og eftir mikla vanlíðan reyndi hann að taka eigið líf. Hann sagði frá slysinu og afleiðingum þess í Gulum september, er sem helgaður sjálfsvígsforvörnum.
Ertu búinn að fyrirgefa sjálfum þér?
„Já, ég gerði það. Það tók alveg tíma. Það gerði það. Við vorum bara krakkar, skilurðu, við vorum bara strákar og við lifðum hratt. Og við vorum aldrei að hugsa um hvað gæti gerst,“ segir Haraldur.
„Við hugsuðum frekar að það gæti ekkert komið fyrir okkur. Þó að þetta hafi verið hraðakstur þá var þetta bara slys. Þetta átti aldrei að gerast og já, maður lærir að lifa með þessu og gera sitt besta til að nýta þetta í eitthvað,“ segir Haraldur Már.
