Vegagerðin varar við hálku

Flughál klakabrynja þekur gangstéttir og götur í miðbæ Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV / Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Vegagerðin varar við hálku í fyrramálið, einkum um norðanvert landið en einnig suðvestantil.

Í veðurspá frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar sem send var fjölmiðlum í kvöld kemur fram að í kvöld verði hæg vestlæg átt, rigning og milt í veðri.

Í nótt verður áfram hægur vindur, styttir upp, léttir til og frystir, víða á blauta vegi. Það má því búast við talsverðri hálku víða í fyrramálið, einkum um norðanvert landið en einnig suðvestantil, og jafnvel flughált á köflum.