Frumvarp um aðgerðir gegn skipulagðri starfsemi ætti með réttu að heita aðför að grundvallarmannréttindum á Íslandi, segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður. Hann gagnrýnir í grein á Vísi að gera eigi grundvallarbreytingu á réttarskipan.
Frumvarpið sem Vilhjálmur gagnrýnir var samþykkt í ríkisstjórn í síðustu viku. Dómsmálaráðherra hefur boðað aðgerðir til að styrkja valdheimildir lögreglu í baráttu við skipulagða brotastarfsemi.
Vilhjálmur telur of langt gengið. Hann segir að það sé ekki ósanngjörn krafa að lögregla læri að fara með núverandi valdheimildir áður en hún fái auknar heimildir. „Annað er ábyrgðarleysi sem má öldungis jafna til þeirrar hegðunar að afhenda óvitum rafbyssur og kalla þær rafvarnavopn með þekktum afleiðingum.“
Fyrsta atriðið sem Vilhjálmur gagnrýnir er að hægt verði að gera eignir upptækar, þótt enginn hafi verið sakfelldur, ef ætla megi að þær séu ávinningur af lögbrotum. Annað atriði sem fer fyrir brjóstið á honum er að lögregla geti í fyrsta sinn gripið til íþyngjandi rannsóknaraðgerða án dómsúrskurðar.
Vilhjálmur gagnrýnir líka að lengja eigi hámarkstíma gæsluvarðhalds úr 12 vikum í sex mánuði og að frestur lögreglu til að afhenda verjendum málsgögn lengist úr þremur vikum í sex.
Hann gefur lítið fyrir ummæli um að frumvarpið byggi á víðtæku samráði Europol, Eurojust, ríkislögreglustjóra, lögreglustjóra, ríkissaksóknara og héraðssaksóknara og segir: „Það er álíka vitlaust og ef ríkisstjórnin hefði falið Miðflokknum að semja lagafrumvarp um aðgerðir í útlendingamálum að höfðu víðtæku samráði við Skjöld Íslands, Ísland – Þvert á flokka og Fratelli d’Italia.“
