Veigra sér við fréttaskrifum af ótta við fjandsamleg viðbrögð

Mikill meirihluti íslenskra blaðamanna segist hafa orðið fyrir áreiti eða fjandsemi vegna fréttaflutnings af málum þar sem upplýsingaóreiða er algeng. Þetta kemur fram í könnun sem Blaðamannafélag Íslands gerði meðal félagsmanna sinna og var kynnt á málþingi Blaðamannafélags Íslands í morgun.

Alls sögðust um 75% blaðamanna hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna umfjöllunar. Um 18% segjast oft hafa orðið fyrir slíku, en tæplega 58% stundum eða sjaldan.

Þessi áreitni lýsir sér aðallega í móðgunum, árásum á samfélagsmiðlum eða áreitni á netinu, en um 11% segjast hafa fengið beinar hótanir.

27% segjast hafa veigrað sér við að fjalla um mál vegna viðbragða sem gætu fylgt umfjölluninni.

Upplýsingaóreiða talin mikið vandamál

Mikill meirihluti blaðamanna telur upplýsingaóreiðu vera vandamál fyrir íslenska fjölmiðla. Í könnuninni segjast 57% svarenda að það sé mjög mikið eða fremur mikið vandamál. 37% til viðbótar segja það vera vandamál í meðallagi mikið. Aðeins 6% segja að upplýsingaóreiða sé lítið eða ekkert vandamál.

Þá segist 71% svarenda hafa tekið eftir mikilli aukningu á upplýsingaóreiðu í starfi sínu síðustu þrjú ár.

Upplýsingaóreiðan á aðallega upptök sín hjá hinum ýmsu hagsmunahópum. Þriðjungur svarenda tiltekur þann hóp. Tæp 20% nefna stjórnmálafólk og litlu færri segja einstaklinga eða erlenda aðila vera helstu uppsprettu falsfrétta.

Nær allir svarendur segjast geta greint milli upplýsingaóreiðu og réttra upplýsinga, en tæpur helmingur segir þó að upplýsingaóreiða hafi aukið álag í starfi.

Þá segjast um 59% blaðamanna halda að upplýsingaóreiða hafi dregið úr trausti almennings til fjölmiðla.

Gervigreindarefni sett fram sem raunverulegt

Blaðamenn voru spurðir út í efni sem er framleitt af gervigreind en sett fram sem raunverulegt. Langflestir svarendur, um 93%, segjast hafa orðið varir við slíkt efni, þar af verður tæpur helmingur oft var við slíkt.

Langflestir svarendur segjast hafa fengið litla eða enga þjálfun eða fræðslu í tengslum við störf sín, en mikil þörf sé á bragarbót.

Könnunin var gerð af Maskínu fyrir BÍ dagana 26. október til 11. nóvember. Svarendur voru 171 og svarhlutfall 55%.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.