Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar sér um skipulagningu æfingarinnar sem stendur fram í næstu viku. Æfingar fara að mestu fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig við hafnir á Suðurnesjum.
Jónas Þorvaldsson, yfirmaður séraðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar, segir allar æfingarnar byggðar á raunverulegum aðstæðum og þeim ógnunum sem sprengjusérfræðingar standa frammi fyrir víða um heim í dag.
„Við erum bæði með köfunarlið og landlið og fyrir hvert verkefni er útbúið sérstakt handrit sem þátttakendur þurfa að leysa. Á tveimur vikum fara sveitirnar í gegnum 600 til 700 mismunandi verkefni.“
Markmið æfingarinnar er að samhæfa viðbrögð við fjölþáttaógn, þar sem ógnir geta verið margvíslegar og flóknar.
Meðal þátttakenda eru fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sem miðla reynslu sinni af meðhöndlun sönnunargagna í tengslum við sprengjuatvik.
Á æfingunni má einnig sjá nýjustu tækni á sviðinu. Þar á meðal er sprengjuhundurinn Spot, eða Depill eins og hann er kallaður, sem er í eigu danska hersins.
„Hann er sérfræðingur í að aftengja sprengjur og er búinn armi sem getur annast hættuleg verkefni á öruggan hátt.
„Þeir komu með hann hingað til lands til þess að prófa hann í þessum aðstæðum hérna og til að sjá hvernig hann bregst við veðráttunni og landslaginu og þeir eru nú þegar búnir að finna hluti sem þarf að laga,“ segir Jónas.
Northern Challenge hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins og er talin lykilvettvangur fyrir samstarf, þjálfun og miðlun reynslu milli bandalagsþjóða.Árleg æfing sprengjusérfræðinga Atlantshafsbandalagsins, Northern Challenge, er hafin hér á landi. Um 300 þátttakendur frá nítján þjóðum taka þátt í æfingunni að þessu sinni, sem haldin er í tuttugasta og fimmta sinn.
