Kópavogsbær sækir fullar heimtur vegna vanefnda verktaka við byggingu Barnaskóla Kársness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá Kópavogsbæ um miðjan síðasta mánuð. Þar kom fram að bærinn hygðist krefja ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher um 3,9 milljarða króna vegna vanefnda við endurbyggingu Barnaskóla Kársness.
Kópavogsbær rifti samningi við Rizzani di Eccher árið 2023 vegna vanefnda og galla á verkinu. Þá átti að vera komið að skilum en verkið var einungis hálfnað. Annar verktaki tók við og lauk framkvæmdinni og skólinn tók til starfa haustið 2025.
Kostnaður Kópavogsbæjar af Barnaskóla Kársness er tæpir níu milljarðar króna, rúmlega tvöföld kostnaðaráætlun. Hluta þess má rekja til klúðurs ítalska verktakans.
Hvergi kemur þó fram í tilkynningu frá bænum að Rizzani de Eccher hefur verið í greiðslustöðvun á Ítalíu undanfarin ár. Dótturfyrirtæki félagsins hér á landi, Rizzani de Eccher Ísland ehf., var úrskurðað gjaldþrota í lok síðasta árs.
Gerðardómur kvað upp dóm þann 3. september 2024 um að riftun Kópavogsbæjar hefði verið lögmæt og að Rizzani skyldi greiða Kópavogsbæ málskostnað að fullu. Kópavogsbær hóf nýtt mál núna í haust og vann að því í nokkra mánuði að taka saman kröfugerð og gögn vegna viðbótarkostnaðar sem féll til vegna verktakaskipta, tafa og stórfelldra galla á verki Rizzani de Eccher. Bærinn lagði málið fyrir gerðardóm og bæjarráð um miðjan október og bærinn sagði að næsta skref væri að sækja fullar bætur. Kópavogsbær sækir heimtur til móðurfélagsins á Ítalíu.
Staða félagsins legið fyrir
Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður hefur unnið að málinu með Kópavogsbæ. Hann segir við fréttastofu að staða verktakans hafi verið ljós fljótlega eftir að niðurstaða Gerðadóms lá fyrir. Rizzani de Eccher hafi verið í greiðslustöðvun í nokkur ár en sé enn í rekstri og vinni víða, einnig utan Ítalíu.
Jóhannes segir óvíst hver innheimtukrafan verður og óvissa um greiðslugetu Rizzani de Eccher í ljósi stöðunnar. „Fyrirtækið hefur ekki verið að borga kröfur þar sem það er í greiðslustöðvun en það er í rekstri þannig ég geri ráð fyrir að það sé að greiða laun og skatta.“
Því eigi eftir að koma í ljós hvað Kópavogsbær fær upp í kröfur sínar.
