Eigendum húsa sem byggð voru á árunum 1924 til 1940 er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga, heldur fyrst og fremst heimilt. Forstöðumaður stofnunarinnar áréttar að það eigi við hús óháð byggingarári.
Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar, segir að misskilnings gæti um hús frá þessum tíma sem njóta hvorki friðunar né friðlýsingar. Lögum samkvæmt þarf að leita leyfis stofnunarinnar fyrir breytingu húsa sem byggð eru fyrir 1923.
„Álitsskyldan sem felld var úr gildi fól ekki í sér lögbundna vernd, heldur var um að ræða leiðbeinandi en ekki bindandi álit. Lög um friðuð og friðlýst hús og mannvirki eru hins vegar óbreytt.“
Með lagabreytingunni var sú breyting gerð að eigendum þessara húsa er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga, heldur er þeim það heimilt.
Álitsskyldan sem felld var úr gildi fól ekki í sér lögbundna vernd, heldur var um að ræða leiðbeinandi en ekki bindandi álit. Lög um friðuð og friðlýst hús og mannvirki eru hins vegar óbreytt.
Áfram er óheimilt að gera breytingar á slíkum húsum og mannvirkjum án leyfis Minjastofnunar Íslands.
„Um er að ræða breytingu sem gekk í gildi núna í fyrradag sem segir að ekki er skylt að leita til Minjastofnunar Íslands vegna breytinga á húsum sem byggð voru á árunum 1924 til 1940. Þetta kom inn í lög árið 2022 og var fellt út núna. Þetta eykur á vernd yngri byggingararfs enda hafa mörg hús sem hingað til hafa fallið utan þessarar álitsskyldu fyrir 1940, sem hingað til hafa fallið utan álitsskyldu, mjög hátt varðveislugildi.“
Þá megi fá álit Minjastofnunar á þeim eftir sem áður. Eftir sem áður séu friðuð og friðlýst hús í landinu vegna aldurs, byggð 1923 og fyrr. Leita þurfi leyfis Minjastofnunar fyrir breytingu á þeim en breyting á álitsskyldunni þýðir að eigendum húsa og byggingafulltrúa er heimilt að leita álits óháð byggingarári.
Rúnar segir þetta létta á kerfinu, þannig að ekki er pressa á að öll hús byggð fyrir 1940 fái álit, sem ekki var bindandi.
„Hafi eigendur eða byggingarfulltrúi á tilfinningunni að eign geti verið merkileg má leita álits stofnunarinnar. Byggingarleyfi verður ekki gefið út fyrr en það liggur fyrir og byggingarfulltrúi getur skilyrt það út frá því. Það sé þó ekki bindandi en þurfi að liggja fyrir.
„Yfirleitt snýr þetta að byggingarleyfisskyldum framkvæmdum sem snúa að ytra byrði og þar fram eftir götunum. Við sjáum fram á að lögð verði til friðlýsing á innréttingum ef þær eru þess eðlis.“
Álitsskyldan nær annars venjulega ekki til innréttinga húsa að sögn Rúnars. Álit er gefið í samráði við eigendur húsanna. Um fimm hundruð hús falla undir vernd, byggð fyrir 1923. Friðlýst hús geta verið byggð á hvaða árabili sem er. Áfram er óheimilt að gera breytingar á slíkum húsum og mannvirkjum án leyfis Minjastofnunar Íslands.
„Friðuð og friðlýst hús eru enn friðuð og friðlýst og það þarf leyfi Minjastofnunar til að breyta þeim.“ Þau hús sem Minjastofnun hafi friðlýst undanfarin ár séu að stórum hluta 20. aldar arkítektúr.
