Víða bjart síðdegis

Í nótt var hægur vindur og kalt. Frost mældist meira en 10 stig á nokkrum stöðvum norðaustanlands.

Að því er segir í pistli frá veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands beinir lægð fyrir norðan land vestanátt til landsins í dag með stöku skúrum vestantil. Það hlýnar í bili upp í nokkrar gráður yfir frostmarki.

Hvessir á Austurlandi

Síðdegis verður vindurinn norðlægur og víða bjart. Dálítil él norðaustantil. Kólnar aftur. Lægðin verður fyrir austan land í nótt. Það gengur í allhvassa eða hvassa norðvestanátt á Austurlandi en mun hægari vindur annars staðar.

Él á norðaustanverðu landinu á morgun en léttskýjað sunnan- og vestantil. Fer að lægja annað kvöld. Frost á bilinu 0 til 7 stig.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.