Gular og appelsínugular viðvaranir verða í gildi frá því síðdegis á morgun vegna hríðarveðurs á stórum hluta landsins.
Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Vestfirði og allt Norðurland klukkan 14 á morgun. Í framhaldinu verður gul veðurviðvörun í gildi við Breiðafjörð, Faxaflóa og á miðhálendinu.
Annað kvöld versnar veðrið fyrir norðan og appelsínugul viðvörun verður í gildi fram yfir miðnætti á Norðausturlandi. Þá verður gul viðvörun á Austurlandi.
Appelsínugul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland snemma morguns á laugardag og varir fram undir hádegi. Þar gætu hviður verið allt að 50 m/s og fólki er ráðið frá ferðalögum. Staðbundið tjón gæti orðið á mannvirkjum.
Hægt er að lesa nánar um viðvaranirnar á vef Veðurstofunnar.
