Vilja auka hlutafé Bláa Lónsins hf. um 14 milljarða

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hófst í morgun og stendur til föstudags.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, segir að til standi að sækja rúmlega 14 milljarða í nýtt hlutafé.

Núverandi hluthafar eru ekki að selja sína hluti heldur er verið að sækja nýtt hlutafé. Viðskipti hefjast með félagið í Kauphöllinni 20.nóvember.

Umfangsmikil uppbyggingarverkefni kalla á aukið fjármagn

Sigríður Margrét segir ástæðu þess að boðað er til hlutafjáraukningarinnar nú vera að styrkja félagið í þeim uppbyggingarverkefnum sem séu fram undan.

Í útboðinu eru hundrað og fimmtíu milljónir hluta til sölu, þar af eru 30% í A-hluta og 70% í B-hluta.

Í A-hluta er fast verð á hvern hlut 95 kr. – en í B hluta er lágmarksverð á hlut 95 kr. og fjárfestir býður það hámarksverð sem hann er tilbúinn að greiða.

Niðurstöðurnar verða kynntar 16.nóvember og fjórum dögum síðar hefjast viðskipti með félagið í Kauphöllinni.

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hófst í morgun og stendur til föstudags. Markmiðið er að auka hlutafé félagsins um ríflega fjórtán milljarða.

Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, hefur verið stjórnendum Bláa Lónsins hf. innan handar við undirbúning útboðsins.

Hann segir að verðmat félagsins byggi á ítarlegum upplýsingum frá stjórnendum. Sömuleiðis hafi þriðju aðilar gert verðmat á félaginu og erlend samanburðarfélög, sem horft var til, verið verðlögð enn ofar.

Elvar segir að sömuleiðis hafi hlutabréf Bláa Lónsins hf. verið eftirsótt á undanförnum misserum og gengið kaupum og sölum á óskráðum markaði.

„Og þar hafa viðskipti átt sér stað á þessu gengi. Sömuleiðis voru kaupsamningar gerðir um kaup á Arctic Adventures og hlutdeildarfélögum Bláa Lónsins á þessu gengi. “

Minna handbært fé milli ára og mikil fjárfestingarþörf

Bláa Lónið hefur fjárfest mikið í uppbyggingu undanfarið, svo sem í Þjórsárdal, í Kerlingarfjöllum og við rætur Vatnajökuls.

Elvar Þór segir þau verkefni öll vera fullfjármögnuð og hlutabréfaútboðið nú sé til þess að styrkja efnahagsreikning félagsins, lækka skuldir og stilla fjármagnsskipan félagsins sem best af.

Í ársreikningi félagsins frá í fyrra eru heildarskuldir félagsins um 203 milljónir evra, um 28 milljarðar króna, og handbært fé fór úr 18 milljónum evra 2024 í sjö.

Lausafjárstaða félagsins er því veikari en áður og fjárfestingarþörfin mikil.

Í útboðsgögnum er greint frá markaðsáhættu hlutabréfakaupa í félaginu.

Ytri aðstæður, á borð við jarðhræringar og fyrirhuguð gjaldtaka stjórnvalda á ferðamannastöðum, geti haft áhrif á að tekjur og afkomu félagsins.

Sigríður Margrét segir stjórnendur félagsins orðna vana því að starfa í umhverfi þar sem þurfi að takast á við ólíkar áskoranir.

„Ef ekki væri fyrir jarðhræringar og eldfjallavirkni væri ekkert Blátt Lón eða heitt vatn á Íslandi. Við njótum mikilla náttúruauðlinda vegna þess.“

Hún segir boðaða gjaldtöku á ferðamannastöðum vera óskynsama. Hún dragi úr samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu sem eigi að stefna að því að verða vellíðunarferðamannastaður.

„Það er alveg ljóst að það mun á næsta ári reyna á verðteygni og vörumerkjastyrk. Að því leytinu stendur Bláa Lónið vel.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.