Vilja hagsmunaskráningu lykilstarfsmanna í Húnaþingi

Ekki er óþekkt að kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum þurfi að tilgreina sína fjárhagslegu hagsmuni í hagsmunaskrá. Engin lög eru þó um slíkt og hafa sveitarfélög sjálf sett sér reglur.

Í frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum sem Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, mælti fyrir á Alþingi í september er gert ráð fyrir að hagsmunaskráning verði skylda fyrir bæði kjörna fulltrúa og æðstu stjórnendur sveitarfélaga. Einhver sveitarfélög, eins og Kópavogur og Reykjavík, hafa þegar slíkar reglur en eiga þær aðeins við um kjörna fulltrúa en ekki starfsmenn.

Ef nýju reglurnar verða samþykktar í Húnaþingi vestra mun slík skráning einnig eiga við um lykilstarfsmenn.

„Það er bara einfaldlega vegna þess að þeir hafa oft aðkomu að umræðu um tilteknar ákvarðanir. Hugsanlega geta þeir biett sér fyrir ákveðnum leiðum. Þetta er bara svo þeir falli líka undir þetta og sé hafið yfir allan vafa,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra.

Valkvæð skráning líkt og í Reykjavík

Skráningin í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra verður valkvæð, þangað til að nýtt frumvarp um sveitarstjórnarlög verður að lögum. Sömu sögu er að segja um Reykjavík en þar er skráningin valkvæð. Í dag, 10. nóvember, hafa fimmtán af 23 borgarfulltrúum tilgreint fjárhagsleg hagsmunatengsl sín á vef Reykjavíkurborgar.

En af hverju fer Húnaþing vestra í þessa vinnu á þessum tímapunkti?

„Það er fyrst og fremst vegna þess að sveitarstjórn vill að það sé gagnsæi í öllum ákvörðunum og það sé ljóst hvort og hvenær er um vanhæfi að ræða. Það sem ýtir þessu af stað núna er að það er í drögum að nýjum sveitarstjórnarlögum gert ráð fyrir hagsmunaskráningu. Við viljum einfaldlega vera á undan og hafa þessa hluti í topplagi hjá okkur.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.