Bændur treysta á að umhverfisráðherra gefi þeim heimild og einhvers konar lausnir til að bregðast við ágangi álfta á kornakra til að verja akra og ræktarlönd fyrir ágangi fuglsins, sem er friðaður. Hundruð, ef ekki þúsundir, hektara eru ónýtir hjá bændum.
Stjórn og framkvæmdastjóri Bændasamtakanna voru nýlega á fundarherferð um landið þar sem þeir hittu bændur og þeirra fólk og fóru yfir stöðuna í landbúnaði. Formaðurinn, Trausti Hjálmarsson, ræddi meðal annars um ágang álfta á kornakra bænda en eins og eflaust flestir vita er álftin friðuð og því ekkert hægt að gera þegar hún étur kornið.
„Ég skil mjög vel þessa stöðu sem bændur eru í, hún er erfið og mjög þreytandi og búin að vera lengi og er heldur að versna,” segir Trausti.
Trausti var með þessi skilaboð frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á fundinum í Félagslundi í Flóa.
„Að þetta væri í góðum farvegi. Hann ætlar að klára þetta verkefni í vetur þannig að við verðum komnir með einhvers konar lausn næsta vor sem mun að öllum líkindum heimila okkur að verja og markmiðið er að við fáum að verja akra okkar og ræktarlönd fyrir ágangi álfta. Þannig að ég ætla að segja að við séum komnir nær í þessu máli en við höfum séð í langan tíma og nú er bara vonandi að orðum fylgi efndir. Við vorum að borða saman hamborgara í síðustu viku og þá lofaði hann mér þessu”.
Og Trausti sagðist á fundinum elska Jóhann Pál ráðherra. Hvað kemur til?
„Hann er bara skemmtilegur og alþýðlegur og alveg í topp tíu í ráðherrahópnum. Hann er vinsæll á meðal bænda, já, já,” segir Trausti formaður.
