Vilja ríkið að borðinu í eftirliti með skeldýrarækt

Aðeins eitt fyrirtæki ræktar krækling en minnst tvö gætu hafið störf á skömmum tíma ef lagaramminn væri endurskoðaður, segir sveitarstjóri Reykhólahrepps.

Íslensk stjórnvöld hafa í tvígang samþykkt lagasetningu sem ganga gegn hagsmunum kræklingaræktar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á sviði opinberrar stjórnsýslu.Ný rannsókn segir íslensk stjórnvöld í tvígang hafa sett svo þungt regluverk á í kræklingarækt að ljóst hefði mátt vera að greinin gæti ekki þrifist. Sveitarstjóri í Reykhólahrepp segir mikil tækifæri í skeldýrarækt en bæta þurfi eftirlitskerfið.

Kjartan Ragnarsson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, segir aðeins einn ræktanda virkan sem stendur. „Það er hann Baldur í Hvammsskel, Búðardal, hann er að rækta línu og selur á markað í mjög litlum stíl. En þetta er í raun fyrst og fremst ástríða og áhugi sem keyrir það áfram,“ segir Kjartan.

Hann segir að ekki séu forsendur í dag til að byggja upp greinina í stórum stíl svo hún verði sjálfbær. Sveitarfélög á Vestfjörðum og víðar hafa áður kallað eftir endurskoðun á lagaramma um skeldýrarækt.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra ræddi stöðu lagareldislaga á fjórðungsþingi Vestfirðinga í vikunni sem leið. Unnið er að lagaramma um stórþörungaeldi og stefnt á löggjöf um fiskeldi fyrir lok kjörtímabilsins.

Kjartan spurði ráðherra um skeldýrarækt. „Svörin voru á þann veg að nú væri vinna í gangi, að vinna með stórþörungaræktun og þar af leiðandi yrði málefni skeldýraræktar að bíða,“ segir hann. Kjartan segir standa til að funda með ráðherra og fara yfir stöðuna með hagaðilum.

Kostnaður og fyrirkomulag heilnæmisrannsókna, matvælaöryggiseftirlits og vöktunar eiturþörunga hefur verið sérstaklega íþyngjandi, segja rannsakendur.

Það þarf náttúrulega bara að útlista það nákvæmlega hvernig eftirlitskerfinu skal háttað þannig að MAST sé ekki sett í þá stöðu að þurfa að vera í lausu lofti með það hvaða reglur gildi og hverjar ekki,“ segir Kjartan.

Hann nefnir sem dæmi að kadmíum-viðmið séu ólík eftir mörkuðum. „Evrópumarkaðurinn miðar við það að kadmíum yfir einum hluta af milljón, það megi ekki fara inn á markað.“ Á sínum tíma hafi MAST stoppað framleiðslu í Steingrímsfirði vegna þess. „en Ameríkumarkaður er með gildi fjóra,“ heldur Kjartan áfram. Hann telur ekki að strangar reglur á Evrópumarkaði eigi að koma í veg fyrir framleiðslu fyrir önnur svæði.

Hann bendir á að skeldýrarækt geti vaxið ört. Frá því að lirfa sé sett í sjó taki tvö ár að ná markaðsstærð. Jafnframt séu kjörskilyrði á íslensku hafsvæði og skeldýr sé hægt að rækta í flestum fjörðum. Greinin kalli nú eftir hlutfallslegri kostnaðarþátttöku þar til sjálfbærni í rekstri sé náð.

„Fyrir það utan þá rækt sem er núna í gangi, þá eru tveir aðrir, á Drangsnesi og í Króksfjarðarnesi, sem gætu byrjað mjög fljótlega að setja út línur og hefja vinnslu.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.