Vilja selja Gagnaveitu Hornafjarðar

Gagnaveita Hornafjarðar hefur verið sett á sölu. Sveitarfélagið hefur átt og rekið fjarskiptafyrirtækið um árabil en sveitarstjórinn telur það þjóna íbúum betur að það komist í einkaeigu.

„Þetta er svolítið sérhæfð starfsemi sem krefst þekkingar og svona ýmislegs sem sveitarfélagið hefur ekki yfir að ráða. Og það er kominn tími á ýmsa þætti sem þarf að uppfæra og við töldum bara farsælla fyrir íbúa og notendur að aðrir tækju við keflinu núna,“ segir Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri á Hornafirði.

Gagnaveitan rekur stofn- og dreifikerfi sem teygir sig yfir um 90 kílómetra og rekur ljósleiðarakerfi í dreifbýlinu í Öræfum, Suðursveit, Mýrum og Nesjum – og á tengingar inn á 200 heimili, auk kerfis milli stofnana sveitarfélagsins.

Fleiri sveitarfélög hafa farið þessa leið á undanförnum árum.

Sveitarstjórnin telur aðra betur í stakk búna, til dæmis til að gera nauðsynlegar uppfærslur á kerfinu.

En telur Hjalti hættu á verðhækkunum, eins og fyrir internet, eða breyttri þjónustu?

„Menn geta kannski búist við meiri áreiðanleika, öflugri tengingum, betra gagnamagni og svona ýmislegu. Ég hef væntingar til þess að íbúar njóti betra kerfis. Varðandi kostnaðinn get ég bara ekkert fullyrt um það núna,“ segir sveitarstjórinn.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.