Vill jafnari stöðu barna sem búa við fátækt:„Það þarf aðgerðir strax“

Varaformaður Samtaka gegn fátækt á Íslandi kallar eftir skjótum aðgerðum stjórnvalda þegar kemur að fátækt barna. Hún segir margt gott í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda.

10.500 börn búa á heimilum undir lágtekjumörkum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt fram fyrstu heildstæðu stefnuna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna.

Stefnan byggir meðal annars á nýrri skýrslu á vegum Háskóla Íslands, þar sem fram kemur að um 10.500 hundruð börn á Íslandi búa á heimilum sem eru undir lágtekjumörkum.

Inga Sæland, barnamálaráðherra, sagði á málþingi í síðustu viku að nauðsynlegt væri að ráðast í þjóðarátak gegn fátækt barna á Íslandi.Tuttugu og einn milljarður verði settur í barnabótakerfið á næsta ári.

„Það er margt mjög gott og flott í þessari stefnu, eins og að skoða eigi barnabótakerfið, sem er orðið mjög gamalt, þannig að ég fagna því og finnst frábært að það eigi að skoða það,“ segir Hildur Oddsdóttir, varaformaður EAPN Ísland, Samtaka gegn fátækt.

„En það sem ég myndi vilja sjá er að það þurfi að gerast aðgerðir strax. Það þarf að jafna út þetta hlutfall hjá öllum börnum, svo þau eigi jöfn tækifæri.“

Rætt var við Hildi í Kastljósþætti kvöldsins.

Ójöfnuðurinn áberandi eftir hverfum

Hildur nefnir í því samhengi fund sem hún sat á föstudag með tveimur starfsmönnum grunnskóla yngsta barns síns.

„Og þar kom fram að í þeim hópi langar fólk að gera eitthvað, en það er ekki hægt því að ef maður til dæmis ætlar að vera með pizzukvöld fyrir þennan hóp, þá væri það ekki hægt því það væru kannski tveir nemendur af þessum tuttugu sem gætu tekið þátt og hinir ekki,“ segir hún, og heldur áfram:

„Þetta er áberandi með Breiðholtið. En eins og ég segi, það þarf aðgerðir strax.“

Þátt Kastljós í fullri lengd má sjá í spilaranum hér að neðan.Varaformaður EAPN Ísland, Samtaka gegn fátækt, segir margt gott í nýrri aðgerðaáætlun barnamálaráðherra gegn fátækt barna. Hún kallar eftir aðgerðum strax.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.