Auglýsingar á Íslandi eiga að vera á íslensku, segir Snorri Másson þingmaður Miðflokksins. Hann mælti fyrir nýju frumvarpi á Alþingi fyrir nokkru um breytingu á markaðssetningarlögum.
Í gildandi lögum segir að auglýsingar sem höfða eigi til íslenskra neytenda skuli vera á íslensku. Í frumvarpinu er lagt til að í stað þess segi að auglýsingar skuli vera á íslensku án þess að tekið sé sérstaklega fram að þær þurfi að höfða til íslenskra neytenda. Snorri var gestur Morgunútvarpsins Rásar 2 í morgun.
Mikilvægt að setja þetta í lög
Þar sagði hann að farið væri á svig við þessi lög á hverjum degi þar sem fyrirtæki og auglýsendur gætu skýlt sér á bak við það að auglýsingarnar ættu að höfða til erlendra neytenda. Snorri segir ákveðna lögleysu í gangi sem bregðast þurfi við til að standa vörð um íslenska tungu og menningu.
„Við þurfum að horfast í augu við það hvernig þessi lög hafa virkað og þau hafa í raun og veru virkað mjög illa ef maður horfir á hvernig þróunin hefur verið. Víðast hvar kemur maður og það er í raun og veru ekkert sem bendir til þess að maður sé á Íslandi. Merkingarnar eru svo áberandi á ensku.“
Því verði stjórnvöld að stíga inn í með róttækum hætti og skylda fyrirtæki til að hafa íslensku í forgrunni líkt og lagt er til í frumvarpinu.
„Þá yrði bara að vera íslenska í auglýsingum. Jafnvel þótt þetta væri Volcano show þá yrði það bara eldfjallasýning og svo mætti þá vera Volcano show samhliða.“
Eigum að vera stolt af íslenskunni
Bragi Valdimarsson, hugkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Brandenburg, var einnig gestur Morgunútvarpsins. Hann tók undir með Snorra og sagði Samtök íslenskra auglýsingastofa, SÍA, hafa skoðað þessi mál.
„Við höfum lengi furðað okkur á því að þessi lög eru til en farið á svig við þau á hverjum degi og það hefur færst í aukana síðustu ár.“
SÍA gerir þó nokkrar athugasemdir við útfærslur frumvarpsins. Taka þurfi tillit til miðla sem skrifi á öðru tungumáli og séu sérstaklega að miðla til ákveðins hóps fólks.
„En ég er alveg sammála, þetta er algjörlega óþolandi. Við eigum að vera stolt af tungumálinu og við eigum að hafa það sem víðast.“
Snorri segir að það eigi ekki að koma til greina að hér sé annað tungumál en íslenska í forgrunni.
„Við ætlum ekki að gefast upp á að samfélagið okkar sé allt á íslensku.“ Afleiðingar þess að bregðast ekki við geti haft afdrifarík áhrif á samfélagsgerðina. Ungt fólk sé í kringum ensku allan daginn og sjái þau ensku allt í kringum sig í búðum og fleiri geri þau ráð fyrir að það sé aðaltungumálið.
Hann segir mikla pólitíska samstöðu ríkja um málið og að hann hafi fengið jákvæð viðbrögð úr flestum áttum. Hann á ekki von á að málið verði fellt á þinginu.
Þurfi að leggja á sektir
Snorri segir mikilvægt að sett verði á viðurlög til að þessu verði framfylgt.
„Það þarf að framfylgja þessu með sektum. Ef að í einhverjum undarlegum aðstæðum þar sem fólk myndi ekki hlíta því þegar yfirvöld væru að gera alvarlegar athugasemdir við það hvernig fyrirtæki er að reka sinn rekstur þá gæti komið til annarra afleiðinga. En það hafa verið gerð átök í sektum á svona sviðum og það hefur borið árangur. Þannig að með því að herða lögin og skýra þau og framfylgja þessu þá held ég að við getum náð árangri.“
Bragi tekur undir þetta. Málin hafi þróast hratt og það þurfi að bregðast við.
„Við vorum fljót að fara úr því að skamma fólk fyrir að segja „mér langar“ yfir í að merkja búðirnar okkar „grocery store“. Þetta er orðið yfirgengilegt og við verðum að hjálpast að og koma í veg fyrir þetta. Lögin eru þarna en það þarf að skýra þau og það þurfa að vera viðurlög og eitthvað til að fara eftir.“Mikilvægt er að auglýsingar á Íslandi séu á íslensku, segir þingmaður Miðflokksins sem hefur lagt fram frumvarp þess efnis. Hann vill sekta fyrirtæki sem fylgja því ekki. Málið sé mikilvægt til að standa vörð um íslenska tungu.
