Vinna 5-6 þúsund tíma á ári í sjálfboðavinnu til að halda Óðni við

Varðskipið Óðinn lauk þjónustu við Landhelgisgæsluna fyrir tuttugu árum en er núna aðal sýningargripur Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Á hverjum mánudagsmorgni mætir hópur manna á sjálfskipaða vakt til að klappa skipinu eins og þeir kalla það. Fyrst voru þeir tveir en eru nú orðnir fimmtán og flestir fyrrverandi skipverjar á Óðni. Markmiðið er að varðveita skipið og merkilega sögu þess.

„Saga skipsins byrjar í rauninni þegar ákveðið er að færa landhelgina úr fjórum mílum í tólf. Þá byrjar undirbúningurinn að byggingu þessa skips. Þetta var tímamótaskip á sínum tíma,“ segir Egill Þórðarson, loftskeytamaður hjá Landhelgisgæslunni. Skipið lék stórt hlutverk í þorskastríðunum þremur. Á hverjum mánudagsmorgni mætir hópur manna að Grandagarði 8 í Reykjavíkurhöfn. Þar liggur Varðskipið Óðinn við bryggju. Landinn kynnti sér málið.

Hætt var að nota skipið í þjónustu Landhelgisgæslunnar 2006 og hafði það þá verið í notkun frá 1960.

„Það var kannski kominn tími á ansi mikið viðhald þegar því var lagt og allur búnaður orðinn svolítið úreltur. En það var samt það heillegt að það var auðvelt að hafa það á safni og geyma það en það kostar heilmikla vinnu að halda því þannig að það grotni ekki niður,“ segir Vilbergur Magni Óskarsson, skipherra á Óðni. „Til að halda svona skipi í horfinu þarf að minnsta kosti þrjá menn í fullu starfi og það er það sem við erum að streða við,“ segir Egill. Hópurinn vinnur 5-6 þúsund tíma á ári í sjálfboðavinnu. „Annars væri skipið ekki sýningarhæft.“