Formaður Landssambands smábátaeigenda segir ríkisstjórnina virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann. Innviðaráðherra hefur óskað eftir umsögnum um áform um breytingu á lögum um byggðatengdar veiðiheimildir.
Áformin sem innviðaráðherra birti í samráðsgátt eru ekki drög að frumvarpi heldur hugmyndir og því segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, erfitt að leggja mat á þau. Hann segir ráðherra hafa lofað góðu samráði.
„Við verðum bara að sjá til en það virðist vera eins og þessi ríkisstjórn ætli bara að standa við sín loforð um að gera vel við strandveiðiflotann. 72,3% þjóðarinnar vilja bæta í strandveiðipottinn og þetta virðist bara vera ríkisstjórn sem skilur það og hlustar á það og ætlar að gera það,“ segir Kjartan.
Þá segir hann gott að það virðist engin áform um að leggja af línuívilnun – sem í stuttu máli er umframkvóti handa þeim sem skapa störf með því láta handbeita og stokka upp línu í landi.
„Og svo er náttúrulega mjög gleðilegt að sjá að það verði lögð áhersla á það að ná stóru aðilunum út úr byggðapottunum, út úr byggðakvótanum, sértæka og almenna.
Þannig það verði frekari áhersla lögð á minni byggðir og minni útgerðir?
„Já, og bara smábáta, vegna þess að það eru smábátarnir sem skapa langmestu störfin í þessum smærri byggðum sko. Stórútgerðin skapar bara einn þriðja af störfunum sem smábátarnir skapa.“
