Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu – margir ráðnir aftur

Á annað hundrað var sagt upp hjá ríkisstofnunum í hópuppsögnum í október, meirihlutinn verður endurráðinn. Atvinnuleysi eykst á næstu mánuðum.

Vinnumálastofnun fékk fimm tilkynningar um hópuppsagnir í október, alls náðu þær til 281 starfsmanns. Meirihlutinn er opinberir starfsmenn, en hluti þeirra fær störf sín aftur.

„Þetta eru tvær stórar opinberar stofnanir sem verið er að leggja niður og renna inn í Stofnun atvinnuveganna um áramótin. Og það er langstærsti hlutinn af þessu,“ útskýrir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar.

Í þeim hópi er 171 sem hefur starfað hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, en þær verða að Stofnun atvinnuveganna, en alls var 177 sagt upp hjá ríkisstofnunum.

Félagsþjónusta, matvælaframleiðsla og sveitarfélögin

41 missti starf sitt við félagsþjónustu og 13 í matvælaframleiðslu. Þá er inni í þessum tölum Vinnumálastofnunar hluti þeirra starfsmanna sveitarfélaga sem hefur verið sagt upp að undanförnu.

„Það eru 50 manns þarna inni frá Reykjavíkurborg,“ segir Unnur.

En er þetta óvenju há tala í októbermánuði? „Já, þetta er óvenjuhá tala af því að þessar stofnanir eru með svo marga. Það er fyrst og fremst það. En ef við tökum þá frá þá eru þetta um 100 manns og það er ekki meira en á þessum árstíma.“

Hvað er hópuppsögn?

Hópuppsagnir eru þannig skilgreindar að ýmist ná þær til 30 starfsmanna eða fleiri eða eru tiltekið hlutfall af starfsmannafjölda.

Til dæmis telst það hópuppsögn ef tíu starfsmönnum er sagt upp á vinnustað þar sem þeir eru færri en hundrað. Ef starfsmenn eru fleiri þarf hún að ná til að minnsta kosti 10% starfsmanna.

Ef starfsmenn fyrirtækis eru 300 eða fleiri, þá þarf að segja upp a.m.k. 30 starfsmönnum til að það teljist hópuppsögn.

Flestar uppsagnanna í október koma til framkvæmda í febrúar. „Þannig að 1. febrúar gætum við farið að sjá þetta í tölunum hjá okkur um atvinnuleysistryggingarnar,“ segir Unnur.

Er eitthvað hægt að meta hvernig öllu þessu fólki gæti gengið að finna ný störf? „Nei, ég held að það sé mjög erfitt. Ég held líka að þetta sé ofsalega ólíkur hópur.“

Fjöldi þeirra sem misstu störf sín í hópuppsögnum í október er í samræmi við spár Vinnumálastofnunar. Núna mælist atvinnuleysi um 4% – en gangi spár eftir eykst það. „Við gerum ráð fyrir rúmlega 5% atvinnuleysi í febrúar og mars. Og mér sýnist við vera að síga hægt og rólega þangað.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.