Íbúar hjólhýsabyggðar upplifa að þeir megi hvergi vera

Búið er að loka fyrir rafmagn og vatn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða í Reykjavík. Þingmenn Flokks fólksins lögðu í dag fram tillögu um varanlega búsetu í færanlegum búsetueiningum.

Í tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að gera frumvarp sem skapi lagagrundvöll fyrir varanlega búsetu í samþykktum færanlegum búsetueiningum á svæðum sem sveitarfélög hafa sérstaklega skipulagt til slíkrar búsetu.

Markmiðið er að kanna hvernig skapa megi nýjan, skýran og öruggan lagalegan valkost fyrir fólk sem kýs slíkt búsetuform.

„Það er bara illa komið fram við okkur“

Í september var tilkynnt að lokað yrði fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða í byrjun nóvember og búsetu þar með sjálfhætt. Styr hefur staðið um búsetuna. Bergþóra Pálsdóttir talskona íbúanna segir þau upplifa að þau megi hvergi vera.Það er bara komið illa fram við okkur. Það er bara ekkert talað við okkur og það vorum ekki við sem vildum fara þarna. Við áttum að vera í 8–12 vikur á sínum tíma.

Hún segir suma íbúa þegar hafa greitt fyrir rafmagnið fram í tímann.Við erum búin að borga reikningana fyrir þennan mánuð og meira að segja erum við búin að fá reikning fyrir desember og ég veit að sumir eru búnir að borga hann.

Ekki boðnir aðrir kostir

Rafmagnsleysið geti leitt til skemmda á tækjunum. Hún segir mikið hafa verið rætt um hve dýrt rafmagn í byggðinni hafi verið en bendir á að hver og einn íbúi greiði fyrir rafmagn. Hún segir hvert hjólhýsi greiða 30 þúsund fyrir rafmagnið sem sé langt umfram það sem hjólhýsi noti.

Hún bendir á að hjólhýsabyggðir tíðkist víða um heim en séu af einhverjum ástæðum hitamál hér heima. Íbúar byggðarinnar viti ekki hvað taki við nú. Þeim hafi ekki verið boðnir aðrir kostir.Við sóttum meira að segja um svæðið þar sem Sorpa var, sem er við hliðina á Sævarhöfða, af því að það var búið að flytja hana. En nei, við máttum ekki fara þangað og það er bara mjög flott og lokað plan. Það sér okkur enginn, en nei, það má ekki.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.