Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga konu á Landspítalanum í apríl 2024. Maðurinn var sjúklingur á spítalanum. Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konuna án hennar samþykkis með því að setja fingur í leggöng hennar, káfa innanklæða á brjóstum, geirvörtum og maga og nudda kynfæri hennar.
Hann er sagður hafa notfært sér að konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum lyfjaáhrifa.
Í einkaréttarkröfu krefst konan 3 milljóna króna í miskabætur.
