„Hún gerði sitt allra besta til að leggja líf fólksins í rúst“

Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem er ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, skjalafals, rangar sakargiftir og ærumeiðandi aðdróttanir á árunum 2022 til 2025, er fordæmalaust bæði hvað varðar eðli og umfang. Ákæruvaldið fer fram á allt að 6 ára fangelsi.

Þetta kom fram í máli Daníels Reynissonar, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglunni á Suðurnesjum fyrir hönd ákæruvaldsins, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þar fer munnlegur málflutningur í málinu fram.

Þetta er síðasti dagur aðalmeðferðar í málinu gegn Írisi Helgu.

Gekk einbeitt til verks

Það var fjölmennt í héraðsdómi í morgun. Mál Írisar Helgu hefur vakið mikla athygli í samfélaginu, meðal annars hjá áhrifavöldum og hlaðvarpsstjórnendum.

Ákæruvaldið sagði Írisi Helgu hafa haft einbeittan ásetning til að fremja brot sín og valda brotaþolum sem mestum sálrænum skaða.„Hún gekk einbeitt til verks. Hún gerði sitt allra besta til að leggja líf fólksins í rúst.“

Brot Írisar Helgu spanna þriggja ára tímabil. Ákæruvaldið segir hana hafa verið virka í brotum sínum allan þann tíma. Hún hafi ekki beðið brotaþola afsökunar, farið með ósannindi og fyrir dómi reynt vísvitandi að afvegaleiða dóminn.

„Slíkar tilraunir voru til þess gerðar að varpa sök á hana sjálfa, trúverðugleiki hennar er ekki neitt. Hún tengir sjálfa sig enn frekar við brotin sem hún er sökuð um.“

Íris Helga lagði fram greinargerð fyrir réttarhöldin en þeim fylgdu meðal annars skjáskot af samskiptum hennar og ættingja mannanna sem hún er sökuð um umsáturseinelti gegn.

Ættingi eins þeirra sagði í skýrslutöku fyrir dómi í síðustu viku að fölsuð gögn hafi verið í greinargerðinni. Það var færsla sem hann skrifaði á Facebook. Hann segir að búið hafi verið að eiga við ummæli við færsluna.

Ættinginn sagðist hafa skrifað ummæli við færsluna þar sem hann hefði látið vita að hægt væri að deila færslunni áfram.

Ummælin, sem fylgdu í fylgigögnum greinargerðarinnar, voru þess eðlis að hann hefði beðið dóttur Írisar Helgu að taka eigið líf.

Daníel aðstoðarsaksóknari sagði ákæruvaldið meta það alvarlegt að leggja fram slík fölsuð og villandi gögn til að afvegaleiða dóminn. Slík háttsemi eigi ekki að vera liðin í samfélaginu „og á ekki að líða fyrir dómi.“

Því næst hóf Daníel að vinna sig í gegnum ákæruliðina sem eru tæplega 70 talsins. Sama mynstrið teiknast upp í málflutningi ákæruvaldsins, jafnvel þó að honum sé hvergi nærri lokið. Bara yfirferð fyrir A-kafla ákærunnar tók 40 mínútur.

Mynstrið sem teiknast upp er að mati ákæruvaldsins á þessa leið:

Íris Helga kynnist manni, það slitnar upp úr sambandi þeirra og þá byrjar umsáturseineltið. Þetta hafi verið atburðarásin í öll þrjú skiptin, gegn brotaþolunum þremur og öðrum tengdum þeim. Aðferðirnar séu keimlíkar.

Það eina sem tengir brotaþolendurna þrjá sé Íris Helga.

Áþreifanlegt hversu miklum skaða hún hefur valdið

Í máli ákæruvaldsins kom fram að áþreifanlegt hafi verið í dómsalnum hversu miklum skaða hún hefði valdið brotaþola og sálarlífi þeirra. Þegar þeir gáfu skýrslu fyrir dómi hafi þeir þótt trúverðuglegir og framburður þeirra áhrifaríkur.„Það er augljóst hversu mikla hræðslu brotaþolar hafa lifað við.“

Það segi sína sögu að enginn framburður fyrir dómi hafi stutt við málsvörn Írisar Helgu. „Varðandi framburð hennar er trúverðugleiki hennar nákvæmlega enginn að mati ákæruvaldsins. Framburður hennar hefur verið óstöðugur, ótrúverðugur og óljós.“

Framburður hennar stenst ekki skoðun að mati ákæruvaldsins.

Íris Helga sagðist hafa orðið fyrir áreitni en ákæruvaldið segir ekkert liggja fyrir í þeim málum. Hún hafi kært hluta af brotaþolum en málið hafi verið fellt niður.„Hún er gerandi í þessu máli, hún er ekki þolandi.“

Allt að sex ára fangelsi

Ákæruvaldið fer fram á 5 til 6 ára fangelsi yfir Írisi Helgu. Hegðun hennar að undanförnu er til rannsóknar vegna nýrra brota á þessu ári.

„Ég legg áherslu á að það eru brot í fleiritölu, meðal annars gegn brotaþola í þessu máli.“

Íris Helga sætir meðal annars nálgunarbanni. Heimildin greindi frá því í síðustu viku að tveir brotaþolar í málinu hefðu fengið nálgunarbann á hendur henni sem gildir í 12 mánuði.

Nálgunarbannið kom eftir atvik þar sem hún sat fyrir brotaþola og sambýliskonu hans á miðvikudag eftir að þriðja degi aðalmeðferðar í máli hennar lauk.„Ákærða er með ríkan og einbeittan ásetning, skeytingarleysi gagnvart brotaþolum og iðrun og eftirsjá er engin.“

Ákæruvaldið fer fram á allt að 6 ára fangelsi, með hliðsjón af alvarleika brotinna, og telur að ekki eigi að binda refsinguna skilorði.

Maðurinn sem er ákærður fyrir hlutdeild í umsáturseinelti Írisar Helgu hefur hreinan sakaferil og leggur ákæruvaldið til að refsing hans verði að minnsta kosti þriggja mánaða fangelsi.

Dómari hefur 4 vikur til að kveða upp dóm en getur fengið frest í allt að 8 vikur.