Allt að 15 stiga frost

Nú er tækifæri til að klæða sig vel því útlit er fyrir frost um allt land í dag, frá eins stigs frosti þar sem verður hlýjast niður í 15 stig í innsveitum norðaustanlands þar sem kuldaboli bítur fastast.

Heilt yfir má búast við tiltölulega rólegu veðri.

Veðurspáin er svohljóðandi:

Fremur hæg breytileg átt og bjartviðri, en suðaustan 5-13 m/s og stöku él vestast fram eftir morgni. Bætir í vind syðst í dag, austan 10-15 og dálítil él þar síðdegis en annars mun hægari og víða bjart.

Austan 10-18 og dálítil él syðst á morgun, annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt. Frost 1 til 15 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.