Fangelsiskerfið er vanrækt og það er löngu tímabært að byggja nýtt fangelsi enda er Litla-Hraun, sem er langstærsta fangelsi landsins, varla mönnum bjóðandi – hvorki þeim sem þar eru vistaðir né starfsfólki. Hugmyndin um fíkniefnalaus fangelsi er óraunhæf og það hefði skelfilegar afleiðingar að loka á öll samskipti fanga við umheiminn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í 7. þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum.
Mikið mæddi á stjórn fangahjálparinnar Verndar um miðjan níunda áratuginn þegar samtökin keyptu hús í Laugardal í Reykjavík því ekki voru allir sáttir við að fá fyrrverandi fanga í hverfið. Á þeim tíma var ekki hægt að ljúka afplánun á Vernd heldur ráku samtökin áfangaheimili, og höfðu gert lengi, á öðrum stöðum í Reykjavík. Laugateigur 19 er aftur á móti fyrsta húsið í eigu Verndar.
Þráinn Farestveit framkvæmdastjóri Verndar segir að fjölmargir hafi mótmælt kaupum félagsins á húsinu við Laugateig en Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar, stóð fremst í stafni við að verja samtökin og baráttu þeirra fyrir mannréttindum fanga. Frá 1994 hafa fangar átt kost á að ljúka afplánun á áfangaheimili Verndar í Laugardalnum.
Þráinn segir að Vernd hafi mætt miklum fordómum á þessum tíma alveg eins og Geðhjálp og Samhjálp undanfarin misseri. Þar vísar hann til þess að Geðhjálp hafi neyðst til að setja húsnæði sem nýta átti undir starfsemi skjólshúss á sölu vegna mótmæla nágranna og deilna um kaffistofu Samhjálpar sem átti að opna á Grensásvegi.
Að sögn Þráins eru fordómarnir víða og í 7. þætti Betrunar segir hann frá tilvikum í tengslum starfsemi Verndar.
Þráinn rifjar meðal annars upp í þættinum þegar allt stefndi í að loka þyrfti áfangaheimili Verndar vegna tálbeituaðgerðar í fréttaskýringaþættinum Kompási í byrjun árs 2007.
Maðurinn sem þar um ræðir var dæmdur í fimm ára fangelsi árið 2004 fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex drengjum og var það einn þyngsti dómur sem kveðinn hafði verið upp í kynferðisbrotamáli á Íslandi. Hann hóf afplánun á Litla-Hrauni í apríl sama ár en þá hafði hann setið gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði. Hann kom á Vernd í október 2006.
Á meðan maðurinn var á Vernd gekk hann í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss þegar hann gerði tilraun til að nálgast barn í gegnum vefinn. Afhjúpun Kompáss leiddi meðal annars til þess að hætt var að vista á Vernd þá sem höfðu brotið kynferðislega á börnum.
„Þá varð það eiginlega þannig að Vernd var nánast komið að því að loka. Álagið var það mikið, ósættið svo svakalegt og skólinn, tómstundir og kirkjan. Það voru allir á hvolfi út af þessu,“ segir Þráinn í 7. þætti Betrunar.
Í greinargerð Fangelsismálastofnunar frá þessum tíma kemur fram að um leið og upp komst að fanginn hefði brugðist því trausti sem honum var sýnt með vistun á áfangaheimilinu var hann fluttur á Litla-Hraun.
Við erum að tala um börn
„Svo hefur auðvitað liðið þessi tími og þessir einstaklingar hafa ekki getað komið á Vernd sem er miður vegna þess að það er mjög mikilvægt að þeir sem hafa brotið af sér með þessum hætti geti komið á Vernd og þá gætum við líka bara sett í samninginn skilyrði um að viðkomandi þurfi að vera í meðferðarsambandi við sérfræðing á þessu sviði. Að öðrum kosti gæti hann ekki komið og ég er alveg klár á því að ef svo væri þá myndi viðkomandi þýðast það og væri bara í rauninni eins og með aðra. En þarna erum við enn og aftur með það sem við töluðum um í upphafi, fordóma, og staða þeirra sem eru gerendur í slíkum brotum ristir dýpra. Við erum að tala um börn,“ segir Þráinn.
Í þáttaröðinni Betrun hefur komið fram að þeir sem brjóta kynferðislega á börnum eiga mjög erfitt uppdráttar innan fangelsa landsins og mæta miklum fordómum af hálfu annarra fanga. Þeir eru í rauninni lægst settir innan fangahópsins.
Þráinn telur að erfitt sé að vinna að endurhæfingu þessa hóps í fangelsum en á Vernd og með rafrænu eftirliti og þeirri tækni sem því fylgir sé hægt að koma í veg fyrir að viðkomandi geti farið á bak við skilyrði sem sett eru fyrir vistun á Vernd.
Ströng skilyrði sett fyrir dvöl á Vernd
Þráinn bendir á að sá sem kemur á Vernd er ekki frjáls maður og ströng skilyrði eru sett fyrir dvöl þar. Hann telur að setja ætti skilyrði um virkni í opnum fangelsum eins og á Sogni, svo sem að fólk þurfi að vakna á ákveðnum tímum og vera í virkni.
„Ég held að það sé mjög gott að við áttum okkur á því að við erum alltaf að tala um einstaklinga og samfélagið í heild sinni. Miðað við þær refsingar sem við beitum þá mun fólk sem í fangelsi fer, ef það deyr ekki í fangelsum, koma út og þá verðum við að hafa vettvang fyrir það til þess að komast inn í samfélagið. Við getum ekki haft þetta þannig að við góða fólkið, sem sofum á dýnunni, setjum hina slæmu í skúffuna undir, bara af því að,“ segir Þráinn.
Þó að þetta sé sárt og erfitt og jafnvel margir þolendur á bak við hvern geranda verði að hafa í huga að fara þá leið sem er farsælust fyrir samfélagið.
Þráinn segir að eitt það erfiðasta í starfinu sé að þurfa að víkja einhverjum úr húsi en yfirleitt er það vegna brota á reglum um notkun vímuefna.
„Að taka ákvörðun sem er svona íþyngjandi fyrir einstakling vegna þess að hann er með vímuefnavanda, sem er í rauninni vandi sem er hægt að meðhöndla en er gríðarlega erfiður og í rauninni mjög erfitt að fá einstaklinga til að horfast í augu við að hann sé fyrirstaða fyrir öllu sem viðkomandi gerir. Og þegar menn eru orðnir veikir þá finnst mér það alltaf verst. Að það sé einhver sem ræður ekki við það sem hann er að bera, það er að segja fíknivandann, og hann er auðvitað bara veikur.“
Að sögn Þráins verður þetta til þess að viðkomandi þarf að fara aftur í fangelsi og jafnvel afplána í lokuðu fangelsi í mörg ár.
Áætlar að vímuefnavandi kosti 150 milljarða á ári
Þráni finnst líka mjög erfitt að sjá ótímabæran dauða margra sem hann hefur haft snertingu við í kerfinu. „Það er svo rosalega mikið af fólki sem bara tapar,“ segir hann og vísar þar til hóps sem verður undir í samfélaginu. Fólk sem deyr ýmist af slysförum, sjálfsvígum eða fíknivanda. „Það er í rauninni kannski sá hópur sem við þekkjum vel og efnin sem er nú verið að eiga við eru mjög erfið. Ópíóíðar eru líklega það efni sem að mínu viti er eitt það allra erfiðasta af öllum efnum sem hafa komið hvað varðar einhvers konar bata eða að menn geti náð sér og ótímabær dauðsföll eru rosalega mörg. Eins og hefur komið fram í tölum þá erum við að missa alveg ótrúlegan fjölda af fólki og ætla má að við séum kannski að missa í vímuefnavanda einhver 100-150, -60, -70 manns á ári.“
Hann nefnir að viðbrögðin yrðu sennilega önnur ef dánarorsakirnar væru aðrar og áætlar að vímuefnavandi kosti samfélagið 150-160 milljarða króna á ári. „Þetta er eitthvað svo augljóst en samt ekki,“ segir Þráinn.
Spurður hvað við getum gert betur sem samfélag bendir Þráinn á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar eins og svo margir aðrir sem þekkja vel vanda ungs fólks sem ekki passar inn í kerfið.
Að börn fái greiningar og markvissan stuðning í skólakerfinu. „Við sjáum það í tölfræðinni hjá okkur að flestir þessara stráka hafa lent illa í skólanum,“ segir Þráinn og háu hlutfalli þeirra sem koma á Vernd hefur liðið illa í skóla og í rauninni liðið fyrir að vera í skóla.
„Þá getur maður spurt sig sem starfsmann hérna. Myndir þú vera hér ef staðan væri sú sama og tilfinning þeirra var þegar þeir voru í skóla. Það er svo augljóst að byrjunin er ekki góð og þarna getum við gert betur. Hætta þessari síbylju um að allir séu eins og að allt efni sem kennt er í skólanum eigi að vera eftir einhverjum tilteknum strúktúr. Af því að það eru einhverjir örfáir sem geta tekið það. Ég held að þarna sé lykillinn að því að stoppa nýliðunina og veita einstaklingum, sem eru í flestum tilvikum mjög hæfileikaríkir, athygli. Fólkið sem kemur til mín er í flestum tilvikum með ADHD, lesblindu og alls konar hluti en virka bara mjög vel í mörgu ef það væri hægt að stilla það þannig af að það væri hægt að gera þetta þannig að það fengi hvata til að vera með það.“
Þráinn segir að nánast öll alvarleg afbrot sem framin eru á Íslandi séu tengd fíkniefnum og áfengi. Að hans mati er lykilatriðið til að breyta því að taka upp skipulagða meðferðar- og endurhæfingarstefnu í fangelsismálum þannig að fólkið sem þangað fer inn fái að njóta farsældar. Í því felist að þar starfi fleiri sérfræðingar sem geti hjálpað því í þeim vanda sem það er í.
„Eins að það sé ekki veittur neinn afsláttur af refsingum því ef þú hugsar um þolandann, það er þann sem verður fyrir brotum, þá er refsingunni ætlað að hafa áhrif á það,“ segir Þráinn og nefnir í því samhengi tímabundið úrræði þar sem erlendum föngum er vísað úr landi. Alls hefur 40 föngum verið vísað úr landi. Aðgerðirnar byggjast á bráðabirgðaákvæði sem samþykkt var á Alþingi og heimilar að veita erlendum föngum reynslulausn eftir aðeins þriðjung afplánunar, að því gefnu að þeim sé vísað úr landi.
Hjónin Guðmundur Gíslason og Hafdís Guðmundsdóttir eru einnig viðmælendur í 7. þætti Betrunar. Þau störfuðu bæði innan fangelsismálakerfisins og hafa nýlega látið af störfum eftir um hálfrar aldar starf í þágu fangelsismála á Íslandi. Í þættinum kynnast hlustendur hjónunum og sögu þeirra sem nær aftur til níu ára aldurs í Melaskóla.
Guðmundur var lengi forstöðumaður fangelsa á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að stýra Fangavarðaskólanum.
Meira ofbeldi fylgir harðari efnum
Þegar Guðmundur byrjaði í sumarafleysingum í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg 9, árið 1974, hafi það verið eins og að stíga aftur til fortíðar. Flestir þar voru ógæfumenn að sitja af sér sektir sem þeir gátu ekki greitt. Fangahópurinn hafi breyst mikið í kringum 1980 þegar vímuefnin urðu harðari og meira um amfetamín og kókaín. Við það fjölgaði ofbeldisglæpum og afbrotin urðu harðari.
Það er auðvitað hægt að byggja fangelsi sem fíkniefni komast ekki inn í en það verður þá að vera með þeim hætti að raunverulega engir aðstandendur, engar sendingar, enginn búnaður sem fólk á sjálft, komist inn í fangelsið, segir Guðmundur.
„En fangelsið verður þá bara að vera lokaður kassi með þeim takmörkunum sem það hefur og náttúrlega ómanneskjulegt á allan hátt.“
Það gæti haft skelfilegar afleiðingar fyrir þá sem þar dvelja. „Maður getur ímyndað sér þá einangrun sem af því hlytist,“ segir Guðmundur. „En fangelsi í dag, þá er ég að tala um þessi venjulegu afplánunarfangelsi, hvort sem það er Litla-Hraun eða fangelsi úti í heimi, þau eru alltaf með þeim hætti að gestum fanganna er hleypt inn í fangelsið og þar fá þeir ákveðinn tíma til að vera með sínum aðstandanda eða fanganum í einrúmi,“ segir Guðmundur og bætir við að smyglleiðir séu ótalmargar og erfitt að koma í veg fyrir smyglið. Fangar fari út fyrir fangelsið, þeir fari í dagsleyfi, fari til læknis í alls konar vitjanir og það er hægt að nota þær til þess að smygla fíkniefnum. Þannig að þetta er vandamál sem erfitt er að koma í veg fyrir, segir Guðmundur.
„Eins og ég segi að ef það ætti að koma alfarið í veg fyrir slíkt þyrfti umhverfið eða rekstur fangelsis að vera með þeim hætti að það myndi enginn una við það, bara enginn í nútímasamfélagi.
Danir byggðu tvö fangelsi á tæpri öld
Í endurminningum sínum bendir Jón Bjarman, fyrsti fangapresturinn hér á landi, á að framkvæmdahraði á sviði fangelsismála hafi verið meiri fyrr á öldum því innan við öld leið á milli byggingar tukthússins við Arnarhól og Hegningarhússins. Tekið skal fram að það voru Danir sem byggðu þau, ekki Íslendingar. Eina fangelsið sem íslensk stjórnvöld hafa byggt er á Hólmsheiði og það tók langan tíma að koma því upp.
Guðmundur segir að Litla-Hraun sé ómögulegt fangelsi og endalaust verið að bæta við þar. Sumt hafi lukkast vel en annað hafi verið ómögulegt frá upphafi. Hann nefnir sérstaklega stóru bygginguna með turninum. „Það sem við köllum hús fjögur og var tekið í notkun 1995. Það hús var aldrei gott, fyrst og fremst held ég vegna þess að það var í rauninni ekki byggt eins og það átti að vera. Það var sparað svo mikið í byggingunni að það varð ekki gott hús.“
Guðmundur er sama sinnis og Þráinn um umhverfi fangelsa, að til þess að fangar uni hag sínum sé mikilvægt að umhverfið sé í lagi.
Í 6. þætti Betrunar fór Þráinn yfir það sem hann telur vont við fangelsið á Hólmsheiði.
Guðmundur nefnir aðrar byggingar sem hafa hýst fanga á Íslandi, svo sem Hegningarhúsið, Síðumúlafangelsið, Litla-Hraun og Kvennafangelsið í Kópavogi. Af þeim var aðeins Hegningarhúsið byggt sem fangelsi. Ekkert þeirra er umhverfisvænt frá sjónarhorni þeirra sem þar dvelja.
„Þetta eru hlutir sem hefði átt að gera miklu betur,“ segir Guðmundur sem sat lengi í byggingarnefndum fyrir fangelsi. Hann segir að til að mynda hefði mátt gera margt miklu betur á Hólmsheiði.
Hafdís tekur undir með Guðmundi en það var orðið aðkallandi að koma upp fangelsi á höfuðborgarsvæðinu, ekki síst vegna aðstandenda, lögreglu og verjenda manna í gæsluvarðhaldi.
Það var greinilegt, segir Guðmundur, að stjórnvöld höfðu ekki áhuga á að gera það sem þurfti að gera. „Það var skorið svo mikið niður að stórir þættir eins og námsaðstaða og vinnuaðstaða fanga varð hreinlega út undan.“ Hann bætir við að stöðugt hafi verið horft til fjölda fermetra, eða réttara sagt hversu fáir þeir ættu að vera, og hvað byggingin yrði að vera ódýr. Afleiðingarnar urðu þær að fangelsið varð ekki eins gott og til stóð.
Þremur fangelsum lokað þegar Hólmsheiðarfangelsi var opnað
Fangelsið á Hólmsheiði var sett niður þar sem lóð fékkst. Það mátti bara vera af ákveðinni stærð og í lokaniðurstöðum útboðsins var sérstaklega tekið fram að það mætti ekki vera stækkanlegt, segir Guðmundur. „Sem er eftir á að hyggja alveg galið.“
Þar eru 56 fangarými en þegar fangelsið var opnað var þremur fangelsum lokað.
Í þættinum er komið inn á pólitísk afskipti af byggingu fangelsa á Íslandi og frekar er fjallað um þau í 9. þætti Betrunar sem verður á dagskrá Rásar 1 þriðjudaginn 24. nóvember. Í næsta þætti Betrunar ber Hólmsheiðarfangelsið einnig á góma. Þar afplána konur sem hafa fengið óskilorðsbundna dóma.Vímuefnavandi er helsta ástæða þess að fólk fremur afbrot og endar í fangelsi á Íslandi. Til þess að koma alveg í veg fyrir að fíkniefni kæmust inn í fangelsi yrði það að vera lokaður kassi sem enginn kæmist inn í og afleiðingarnar yrðu skelfilegar.
Betrun er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum. Hægt er að hlusta á 7. þáttinn í heild hér fyrir ofan.
