Auð hulstur á sögulegum tímamótum tölvuleikja

Hundruð spenntra spilara komu á kvöldopnun verslunar Elko í Lindum í Kópavogi til að sækja tölvuleikinn eftirsótta, Grand Theft Auto 6, sem þeir höfðu forpantað. Kvöld- og miðnæturopnanir vegna tölvuleikjaútgáfu voru algengar fyrir nokkrum árum en með breyttum neytendavenjum og áherslu á netverslun eru þær nánast hættar.

Nú stefnir í að framleiðslu tölvuleikjadiska fyrir PlayStation verði hætt árið 2028. Það er ekki óhugsandi að kvöldopnunin í gærkvöldi hafi verið sú síðasta því það er alls ólíklegt að einhver leikur verði jafn eftirsóttur á næstu árum.

Guðmundur Atli Hlynsson fréttamaður RÚV fór í Elko og tók púlsinn á spenntum tölvuleikjaunnendum.Hundruð gerðu sér ferð í verslun Elko í Lindum á útgáfu tölvuleiksins eftirsótta, GTA 6. Forstöðumaður markaðssviðs Elko segir að þetta gæti hafa verið síðasta kvöldopnun fyrir útgáfu tölvuleiks.

Hvað færðu fyrir að kaupa leikinn í búð?

GTA 6 kemur aðeins út á stafrænu formi. Það er enginn diskur til að setja í leikjatölvu. Það vekur spurningar um hvers vegna fólk kaupir hulstur í búðum eins og Elko.

Eins og sjá má í myndbandinu fengu þeir sem keyptu leikinn hulstur merkt honum. Það er ekki diskur í hulstrinu heldur kóði og plaköt. Kóðinn er settur í leikjatölvuna og þannig fæst aðgangur að leiknum. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá hvað fylgir með hulstrinu.

„Er þetta síðasta kvöldopnunin, ég veit það ekki“

Sony hefur tilkynnt að framleiðslu á tölvuleikjadiskum verði hætt 2028 og leikirnir færist alfarið yfir á stafrænt form. Sony framleiðir PlayStation-leikjatölvurnar sem eru þær langvinsælustu í dag.

Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs Elko, segir að ákveðið hafi verið að hafa kvöldopnun þar sem spennan fyrir leiknum er svo mikil. Opnunin lukkaðist vel og löng röð myndaðist fyrir utan búðina.

Meðal spenntra kaupenda GTA er Ólafur Þór Jóelsson betur þekktur sem Óli Jóels, einn stofnenda Game Tíví. Hann er framkvæmdastjóri heildsölu Senu sem hefur umboð fyrir PlayStation tölvur.

Guðmundur náði tali af Óla og spurði hann meðal annars um sögulegu útgáfuna.Hundruð gerðu sér ferð í verslun Elko í Lindum á útgáfu tölvuleiksins eftirsótta, GTA 6. Forstöðumaður markaðssviðs Elko segir að þetta gæti hafa verið síðasta kvöldopnun fyrir útgáfu tölvuleiks.