Náttúrunni ætlað að greiða fyrir hagvöxt til skamms tíma

Engin rök eru fyrir því að lækka stærðarmörk virkjanakosta rafmagns utan rammaáætlunar niður í tíu megawött úr 25, segir Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar.

Þorgerður segir að frumvarpið bendi til þess að ríkisstjórnin sé orðin örvæntingarfull í tilraunum sínum til að auka hagvöxt í landinu. Þessi viðmiðunartala hafi birst eins og skrattinn úr sauðaleggnum.

„Það virðist eiga að vera íslensk náttúra sem borgar brúsann. Þetta verður kannski innspýting til styttri tíma en til lengri tíma eru þetta mjög slæmar ákvarðanir,“ segir Þorgerður.

Landvernd kvartar undan stuttum umsagnartíma

Eins og áður sagði þurfa rafaflsvirkjanir undir 25 megawöttum að fara gegnum rammaáætlun gangi frumvarpið eftir og viðmiðið fyrir varmaafl fer úr 50 megawöttum í 125 megawött. Sérreglur um vindorku haldast óbreyttar.

Í samráðsgáttinni segir að verulegur munur á umfangi málsmeðferðar eftir því hvort uppsett afl er undir eða yfir 10 MW geti hvatt framkvæmdaaðila til að halda afli undir viðmiðinu þótt aðstæður gefi kost á meiri orkuvinnslu. Þorgerður segir það einnig rökleysu.

„Þannig er hætta á að aflmarkið ráði útfærslu framkvæmdar fremur en hagkvæm nýting viðkomandi virkjunarkosts. Hækkun aflmarkanna getur því stuðlað að hlutfallslega betri nýtingu auðlinda og innviða miðað við umfang rasks,“ segir á samráðsgáttinni.

Þorgerður segir Landvernd hafa farið fram á lengri tíma en tvær vikur til að veita umsögn um frumvarpið, enda þurfi lengri tíma til að skoða svo stórt og viðamikið mál.

„Almenningur á rétt á því að skrifa umsagnir, hafa eitthvað um málið að segja og svo er auðvitað kæruheimild,“ segir Þorgerður og bætir við að Landvernd falli undir þá skilgreiningu.

Þorgerður kveðst jafnframt óttast að einföldun leyfisferla komi niður á lýðræðislegri þátttöku almennings og tækifærum til að bregðast við enda séu umsagnar- og kærufrestir styttir í sumum frumvarpanna og þeim fækkað.

Í sama frumvarpi er lagt til að meðferð mála um eignarnám lands vegna raflína verði settar tímaskorður.

Ekki er lagt til að framkvæmdir geti hafist við raflínur áður en því ferli er lokið, líkt og ráðherra hafði áður kynnt. Einnig gæti kostnaður nýrra virkjana við að tengjast raforkukerfinu lækkað ef tengingin hefur í för með sér ávinning fyrir kerfið í heild.