Eigendur Hamborgarafabrikkunnar reyndu að selja reksturinn í langan tíma áður en nýr eigandi kom að honum í mars. Þetta herma heimildir fréttastofa en margir á veitingamarkaði vita af þessum tilraunum til að selja rekstur staðarins. Þetta helst hefur heimildir fyrir þvi að fyrrverandi eigandinn, Hringanes ehf., hafi meira að segja reynt að gefa reksturinn, það er að segja að einhver tæki rekstur staðarins yfir án endurgjalds.
Í mars á þessu ári seldi félagið Hringanes, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og eignarhaldsfélags í eigu Árna Péturs Jónssonar, veitingastaðinn til félags sem heitir Sjófang og er sjávarútvegsfyrirtæki. Þetta fyrirtæki er í eigu Jóns Örn Jakobssonar.
Á einungis rúmu hálfu ár hefur Hamborgarafabrikkan farið frá því að vera seld til nýs eiganda og yfir í að vera innsigluð af Skattinum og lögreglunni. Lokun Hamborgafabrikkunnar í Katrínartúni vakti talsverða athygli á miðvikudaginn. Almennt séð fara skatturinn og lögreglan ekki í slíkar aðgerðir gegn veitingahúsum og öðrum fyrirtækjum nema að þau skuldi skatta eða opinber gjöld, hafi ekki greitt virðisaukaskatt eða launatengd gjöld af starfsfólki í lengri tíma.
Fjallað er um þessa lokun Hamborgafabrikkunar og aðdraganda hennar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þar er einnig rætt við Einar Bárðarson, framkvæmdastjóra hagsmunasamtaka fyrirtækja á veitingamarkaði SVEIT. Þáttinn má hlusta á hér:Lögregn og Skatturinn innsigluðu Hamborgafabrikkuna í Höfðatorgi í vikunni. Í mars komu nýir eigendur að veitingastaðnum en framkvæmdastjórinn hætti samt í júní. Fyrri eigendur höfðu leitað lengi að nýjum eiganda.
Tap á rekstrinum í fyrra
Hamborgarafabrikkan hafði verið í þessu húsnæði á Höfðatorgi í mörg ár, kennitala veitingastaðarins er frá árinu 2009 og þessi staður hefur verið mjög vinsæll hjá sérstaklega börnum. Stofnendur veitingastaðarins á sínum tíma voru þeir Jóhannes Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálmsson, eða Simmi og Jói eins og tvíeykið var gjarnan kallað, og voru þeir andlit Fabrikkunnar út á við. Þeir hafa hins vegar ekki komið að rekstrinum í mörg ár.
Sigmar fór út úr eigendahópnum árið 2019 en Jóhannes hélt áfram að reka staðinn í félagi við eigendur Aktu Taktu og American Style þar til árið 2022. Þá var rekstrarfélag þessara staða, Gleðipinnar, selt til Kaupfélags Skagfirðinga og Árna Péturs.
Athygli vekur að rekstrarfélag Hamborgarafabrikkunar, Nautafélagið ehf., skilaði ársreikningi sínum í lok febrúar á þessu, skömmu fyrir eigendaskiptin á fyrirtækinu. Yfirleitt skila fyrirtæki ársreikningum talsvert síðar en þetta.
Í þeim reikningi kom fram að tekjur Nautafélagsins drógust saman á milli áranna 2024 og 2025 og fóru úr rúmlega 230 milljónum í niður í tæplega 210. Tap var á rekstrinum upp á 18 milljónir í fyrra. Í lok febrúar sögðu allir stjórnarmenn Nautafélagsins sig úr stjórn félagsins í aðdraganda sölu hans, meðal annars Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga og Árni Pétur Jónsson.
Árni Pétur segir í samtali við fréttastofu að Hamborgarafabrikkan hafi ekki stefnt í gjaldþrot þegar fyrirtækið var selt í mars. Hann segir að viðskiptin með Hamborgarafabrikkuna hafi verið eðlileg viðskipti. Árni Pétur vill ekki greina frá söluverðinu á Hamborgarafabrikkunni og segir hann að eigendur Hringaness hafi aldrei ætlað sér að eiga veitingastaðinn til langframa.
María Rún Hafliðadóttir var framkvæmdastjóri Hringaness þegar Hamborgarafabrikkan var seld í mars. Hún svaraði fyrir söluna í fjölmiðlum á þeim tíma. María Rún segist hafa látið af störfum hjá Hringanesi í mars, í sama mánuði og Hamborgarafabrikkan var seld. Hún vill ekki koma í viðtal um söluna á Hamborgarafabrikkunni.
Nýi framkvæmdastjórinn hætti í júní
Einnig vekur athygli að framkvæmdastjóri Hamborgarafbrikkunar, Álvaro Montenegro, sagði af sér sem framkvæmdastjóri veitingastaðarins þann 1. júní síðastliðinn. Tilkynning um þetta var send til Skattsins í byrjun júní.
Þetta var einungis tæpum þremur mánuðum eftir að nýr eigandi Jón Örn Jakobsson keypti staðinn fyrir ótilgreint verð. Í frétt DV um eigendaskiptin á Hamborgarafabrikkuni í mars kom fram að áðurnefndur Alvaro Montenegro og Hulda Jónsdóttir, sem er dóttir Jóns Arnar, myndu reka Hamborgarafabrikkuna eftir eigendaskiptin. Alvaro og Hulda eru hjón. Þetta stóð hins vegar stutt við.
Fréttastofa hafði samband við Jón Örn Jakobsson í tölvupósti og ætlaði að spyrja hann um lokun Hamborgarafabrikkunar. Þetta gekk hins vegar ekki.
Skúli Ólsen skattstjóri hefur ekki viljað gefa fréttastofu upplýsingar um ástæður þess að Hamaborgarafabrikkan var innsigluð. Hann segir trúnað ríkja um slíkar aðgerðir Skattsins og lögreglunnar.
