Aukin spenna virðist tekin að færast í samskipti Icelandair og stéttarfélaga flugmanna og flugvirkja, tengd kjaraviðræðum. Félögin draga samningsvilja flugfélagsins í efa sem forstöðumenn þess þvertaka fyrir. Fylkingarnar hafa skipst á bréfasendingum í dag og í gær.
Icelandair kveðst reiðubúið til áframhaldandi málefnalegra viðræðna við stéttarfélög flugfólks og lýsir vilja til að ná samningum eins fljótt og unnt sé. Formenn félaganna hafa dregið það í efa.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu Boga Nils Bogasonar og Guðmundar Hafsteinssonar, forstjóra og stjórnarformanns flugfélagsins.
Bréfið er svar við opnu bréfi formanna Flugvirkjafélags Íslands, Flugfreyjufélags Íslands og Félags íslenskra atvinnuflugmanna frá í gær, þeirra Óskars Einarssonar, Berglindar Kristófersdóttur og Jóns Þórs Þorvaldssonar.
Þeir Bogi og Guðmundur segja að í bréfi formannanna sé dregin upp mynd sem þeir telja villandi og ósanngjarna.
Í bréfi stéttarfélaganna segir að deila flugvirkja sé í hnút og að ekki hafi verið boðað til frekari funda hjá ríkissáttasemjara nema þess verði óskað sérstaklega og að viðræður flugmanna séu árangurslausar þar sem Icelandair hafi hafnað öllum sáttatillögum.
Enginn formlegur fundur hefur verið haldinn í flugmannadeilunni í tvær vikur. Flugfélagið sé ekki að verjast kostnaðarhækkunum heldur að sækja hagræðingu á kostnað vinnuaðstæðna og starfsöryggis.Icelandair hefur í fjölmiðlum lýst kröfum flugstéttanna sem óraunhæfum og vísað til mikilla launahækkana á Íslandi. Það sem helst stendur út af snýst þó ekki fyrst og fremst um laun. Í viðræðum við flugvirkja er deilt um vaktafyrirkomulag. Í viðræðum við flugmenn hefur félagið lagt áherslu á heimild til að leigja inn erlendar áhafnir og aukinn sveigjanleika í hvíldarreglum.
Forráðamenn Icelandair segja launakjör flugstétta hafa þróast umfram almenna markaðinn og það geti ekki samþykkt breytingar sem veiki samkeppnishæfni félagsins.
Stjórn og stjórnendur Icelandair beri ábyrgð á því að reka félagið með langtímahagsmuni þess að leiðarljósi. Óábyrgt væri að veikja samkeppnishæfnina, ekki síst með hagsmuni starfsfólksins í huga.
Einnig hafi Icelandair sent tillögur beint á flugmenn án samskipta við samninganefnd. Flugmenn hafa samþykkt ótímabundið verkfall frá og með 20. nóvember, sem afmarkast við leiguflug fyrir þriðja aðila.
Þótt viðræður Flugfreyjufélagsins séu ekki enn sagðar komnar í öngstræti en það tekur undir áhyggjur hinna félaganna. Bogi og Guðmundur segja ekki rétt að Icelandair skorti samningsvilja þótt það geti ekki fallist á þær kröfur sem komið hafi fram.
Stéttarfélögin skora jafnframt á lífeyrissjóði sem eru stórir hluthafar að kalla eftir skýrri framtíðarsýn, standa vörð um réttindi starfsfólks og krefjast raunverulegs samningsvilja. Félögin lýsa jafnframt áhyggjum af því að félagið hyggist flytja störf úr landi.
„Tryggja þarf að réttindi starfsfólks og ákvæði kjarasamninga séu virt og að rekstrarform verði ekki leið til að veikja samningsstöðu íslenskra stéttarfélaga,“ segir í bréfi formannanna.
Stjórnendur Icelandair segja slíkar fyrirætlanir af og frá, heldur sé vexti félagsins á Möltu og Litáen ætlað að þróa rekstur og tækifæri á alþjóðamarkaði.
„Við höfnum jafnframt þeirri ályktun að uppbygging Icelandair erlendis sé til þess ætluð að komast hjá íslenskum kjarasamningum eða íslenskum vinnurétti. Starfsemi félagsins byggir á þeim lögum, reglum og samningum sem um hana gilda á hverjum stað.“
