Barn geti fengið upplýsingar um nafn sæðisgjafa

Takmarka á notkun sæðisfruma úr sama einstaklingi samkvæmt frumvarpsdrögum heilbrigðisráðherra. Þá verður endurskoðuð krafa um sambúð eða hjúskap þeirra sem ætla í tæknifrjóvgun. Endurskoða á rétt þeirra sem eru getin með gjafafrumum um líffræðilegan uppruna, nafn gjafans og aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Barn sem getið er með gjafafrumum á rétt á að fá upplýsingar um nafn gjafans við átján ára aldur samkvæmt frumvarpsdrögum heilbrigðisráðherra. Þá á að takmarka notkun sæðisfruma úr sama einstaklingi.

Frumvarp um tæknifrjóvganir í samráðsgátt

Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi um heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðherra segir brýnt að setja ákvæði sem takmarkar notkun kynfrumna úr sama einstaklingi til að draga úr hættu á of nánum skyldleika. Vegna smæðar íslensku þjóðarinnar ætti að mati ráðherra að takmarka notkun kynfrumna úr sama einstaklingi við að úr verði börn í einungis tveimur fjölskyldum að hámarki.

Vill ekki menn sem feðra mörg hundruð börn

„Við munum auðvitað öll eftir fréttum og heimildarþáttum þar sem fram hefur komið að erlendir gjafar hafa feðrað jafnvel mörg hundruð börn og það eru engin slík ákvæði í íslenskum lögum þó að vissulega hafi stöðvarnar sem sinna tæknifrjóvgun haft það sem vinnureglu að sami gjafi geti aðeins gefið erfðaefni til tveggja fjölskyldna þannig að þetta er til að lögfesta það þannig að þarna er spurningin hvort þetta verði ein fjölskylda eða tvær,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra í viðtali við fréttastofu.

Einhleypir geta farið saman í tæknifrjóvgun

Þá er lagt til í drögunum að endurskoða kröfu laganna um að sambúð eða hjúskapur sé skilyrði fyrir því að einstaklingar geti staðið saman að tæknifrjóvgun í þeim tilgangi að búa til barn, með vísan til jafnréttis og til að koma til móts við breytta samfélagsgerð.

Foreldrar barns upplýsi það um gjafann

Þá telur ráðherra fulla þörf til að endurskoða réttindi barna og fólks sem getin eru með gjafafrumum og rétt þeirra til að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn við átján ára aldur. Foreldrum barnsins ber að upplýsa það um gjafann, þar á meðal nafn hans og aðrar persónugreinanlegar upplýsingar. Drög að frumvarpinu eru í samráðsgátt til 30. nóvember. Alma Möller heilbrigðisráðherra vonast til að sem flestir sendi inn umsögn og segist býða spennt eftir því að vita hvaða skoðun fólk hafi almennt.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.