Ísland nær ekki markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 en kolefnishlutleysi fyrir 2040 er ennþá raunhæft markmið. Ísland stendur sig áberandi verst Norðurlandanna við að draga úr losun og þjóðin þarf að búa sig undir vaxandi ójafnvægi í veðurfari, áhættu og óvissu og aðlagast breyttum veruleika markvisst.
Þetta er meðal þess sem lesa má í fyrstu stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs þar sem staða Íslands í loftslagsmálum er sett í samhengi á heimsvísu. Ráðinu er gert að bregðast árlega við eftirfylgniskýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaraðgerða. Skaði af völdum loftslagsbreytinga muni ágerast á næstu árum.
Ljóst sé að Ísland þurfi að grípa til metnaðarfyllri aðgerða til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu og grípa til markvissrar aðlögunar.
Horfur séu alvarlegar og hlýnun heims stefni yfir þau mörk sem ríki heims sammæltust um að forðast. Þótt Ísland nái ekki markmiðinu um samdrátt losunar sé brýnt að minnka hana og auka bindingu eins og unnt sé með markvissum aðgerðum.
Efla þurfi samhengi markmiða og aðgerða að mati Loftslagsráðs. Skynsamlegra sé að verja fé í vel hannaðar aðgerðir sem geti einnig eflt heilsu, hagsæld og líffræðilega fjölbreytni en að greiða fyrir vanefndir.
Almenningur, ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og vísindasamfélagið hafi áður sýnt fram á að þau geti náð árangri í loftslagsmálum og gert yfirgripsmiklar kerfisbreytingar vegna þeirra.
Loftslagsráð er sjálfstætt starfandi og hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og markvissa ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.
Því er ætlað að veita ráðgjöf um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aðgerðir til að auka kolefnisbindingu, veita ráðgjöf um aðlögun að loftslagsbreytingum, rýna áætlanir stjórnvalda sem snerta loftslagsmál og hafa yfirsýn yfir miðlun fræðslu og upplýsinga um loftslagsmál til almennings, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.
