Borgarbyggð vill ekki að fyrirhugað vindorkuver í Borgarfirði fari í biðflokk rammaáætlunar. Formaður byggðaráðs segir sýnileika og samfélagsleg áhrif það mikil að Grjótháls eigi heima í verndarflokki.
Af sjö vindorkukostum í tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar í samráðsgátt er lagt til að tveir fari í biðflokk, Grjótháls í Borgarfirði og Hnotasteinn á Melrakkasléttu. Borgarbyggð hefur áður lagst gegn því að Alviðra fari í nýtingarflokk.
Sigurður Guðmundsson, formaður Byggðaráðs í Borgarbyggð, segir virkjunarkostinn á Grjóthálsi, sem kallaður er Alviðra, hafa hátt verndargildi. Hann bendir á að Grjótháls liggi mitt í sveit þekktri fyrir landbúnað, útivist og afþreyingu.
„Hann er í mikilli nálægð við þekktar laxveiðiár og það er mikil andstaða í nærsamfélaginu við vindorkukostinn,“ segir Sigurður.
Náttúran metin einna verðmætust
Í umsögninni tekur byggðaráð fram að niðurstöður faghópa rammaáætlunar mæli eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu. Í tillögunni í samráðsgátt kemur fram að verðmæti náttúru séu metin mest af þeim sjö kostum sem eru til skoðunar. Hún er líka talin hafa mestu neikvæðu áhrifin á samfélagið.
Hins vegar er tengikostnaður hlutfallslega lágur og áformað uppsett afl væri mikið. Það gæti líka dregið úr þörf aflflutninga milli landshluta.
Lagt er til að verkefnið fari í biðflokk. Í rökstuðningi er tekið fram að andstaðan í samfélaginu sé mikil. Óljóst sé hvort unnt sé að haga framkvæmdinni þannig að um hana náist víðtækari sátt.
Byggðarráð Borgarbyggðar segir niðurstöður faghópanna mæla eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfesta ríka verndarþörf.
Sigurður segir byggðaráð kalla eftir því að farið sé að niðurstöðu faghópanna „að þessi kostur fari í vernd þannig að hann sé út úr myndinni sem vindorkukostur.“
„Ólögmæt beiting á biðflokki“
Í umsögninni er tillagan um að Alviðra fari í biðflokk gagnrýnd harkalega. Bent er á að biðflokkur sé flokkur sem eigi við þegar frekari upplýsingar skortir til að meta megi hvort virkjunarhugmynd eigi að fara í nýtingu eða vernd. Biðflokkur myndi halda málinu opnu og skapa viðvarandi óvissu.
Byggðarráð gagnrýnir jafnframt röksemdafærslu um að kosturinn fari í biðflokk af því að óljóst sé hvort að um framkvæmdina geti náðst víðtækari sátt. Í umsögninni segir: „ Engar frekari náttúrufræðilegar eða tæknilegar upplýsingar vantar sem gætu breytt þeirri staðreynd að svæðið er í hæsta gæðaflokki hvað varðar verndargildi. Biðflokkur er ekki lögboðin biðstofa fyrir virkjunaraðila til að reyna að knýja fram breytta afstöðu íbúa eða byggðarráðs þegar öll fagleg gögn mæla gegn virkjun.“
Hefur trú á að ráðherra taki tillit til afstöðu sveitarfélagsins
Sigurður segir virkjunarkostinn ekki eiga að fara í biðflokk nema af því að það vanti frekari rannsóknir. „Við teljum að það sé í raun ekkert sem þurfi að rannsaka meira um þennan kost.“
Sveitarstjórn Borgarbyggðar á eftir að taka málið fyrir en Sigurður telur að þar verði einnig eining um málið. Hann hvetur jafnframt ráðherra til að taka tillit til afstöðu sveitarfélagsins þegar hann gangi frá málum. „Ég hef fulla trú á að hann geri það,“ bætir Sigurður við.
