Jökull Elísabetarson er mættur til starfa á Kópavogsvelli en hann var kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta á föstudaginn. Hann segir umtal um þjálfarakapal og að vera orðaður við hin og þessi félög ekki hafa áhrif á sig.
Jökull var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar um miðjan júní. Hann segist hafa kúplað sig alveg út þangað til hann fór að huga að næstu skrefum í haust. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðablik 2010, þjálfaði Augnablik – venslalið Breiðabliks 2017-21 – og er nú snúinn aftur, hann tekur við liðinu af Ólafi Inga Skúlasyni.
„Breiðablik er auðvitað mér kært og ég hafði alltaf hugsað að ég myndi vilja koma aftur. Ég ræddi á þeim nótum við fólkið í Breiðablik. En hvort að þetta væri tímapunkturinn var svosem ekkert líklegt. Breiðablik átti áhugavert tímabil. Náði árangri og Óli gerði margt ótrúlega vel en staðan í dag er auðvitað þannig að maður vissi ekki neitt. Það eru ekki mörg laus störf í íslenskum fótbolta í dag svo maður var við öllu búinn,“ segir Jökull.Jökull Elísabetarson hefur hafið störf hjá Breiðablik. Hann tekur við þjálfun karlaliðs félagsins í fótbolta til næstu tveggja ára.
Jökull skildi við Stjörnuna í níunda sæti deildarinnar en sjöunda sætið varð niðurstaðan. Blikar höfnuðu í fimmta sæti en urðu bikarmeistarar. Tala má um vonbrigðasumar hjá báðum liðum í deildinni.
„Þetta er ólíkt umhverfi samt líka. Ég finn alveg muninn þegar ég kem hérna inn, á að vera hér og vera í Garðabænum, þetta er ekki eins. Það er verkefni fyrir höndum hjá öllum sem standa að félaginu að lyfta stemningunni upp. Það er vinna framundan.“
Mikið er rætt og ritað um svokallaðan þjálfarakapal í íslenska boltanum og Jökull var orðaður við hin ýmsu félög eftir að hann missti starfið í Garðabæ.
„Ég er svo rólegur yfir öllu svona. Ég hef rosa lítið gaman að slúðri. Þegar fólk er að ýta að mér að það eigi að hitta þennan og hinn. Hvort það hafi áhrif á mig þá ýti ég bara öllu frá mér. Ég trúi því bara að upp úr öllu gerist góðir hlutir og hvort sem það snúi að því að ég missi starf annars staðar eða eitthvað í kringum þetta hér. Ég var alveg rólegur. Ef þetta hefði ekki gerst núna hefði eitthvað annað frábært gerst og þetta hefði þá gerst seinna.“
