Búast má við hæglætisveðri í dag. Norðan stinningsgola eða kaldi. Dálítil él eða skúrir en bjartviðri á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti um og yfir frostmarki.
Þetta kemur fram í veðurpistli frá Veðurstofu Íslands.
Vegagerðin varaði í gær við því að það yrði hált í dag, einkum um landið norðanvert en einnig suðvestantil. Á vef hennar umferðin.is má sjá að snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víða um land.
Meðal annars er hálka á Holtavörðuheiði, í Borgarfirði og á Vatnsskarði. Hálkublettir eru á Hellisheiði, í Þrengslum og nokkuð víða á Suðurnesjum. Fyrir sunnan er hálka á hringveginum milli Þjórsár og Markarfljóts og hálkublettir á flestum öðrum leiðum.
Í nótt hvessir nokkuð og á morgun má búast við 8–15 m/s úr suðvestanátt með dálitlum éljum. Þykknar upp vestantil en snýst í hægari norðlæga átt og léttir til aftur seinnipartinn á
morgun. Hiti yfirleitt um frostmark en 3 til 7 stig á Vesturlandi yfir daginn.
Útlit er fyrir nokkuð rólegt veður fram á föstudag.
