Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli fyrir skömmu. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi. Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins.
Í viðtali við fréttastofu sagði Ólafur yngri að starfsemi Samskipa myndi ekki breytast að ráði eftir kaup spænska fyrirtækisins, sem heitir Boluda, og að kaupverðið myndi ekki verða gefið upp.
Sagan um eignarhald Ólafs Ólafssonar á Samskipum síðastliðna þrjá áratugi er áhugaverð í meira lagi. Til þess að átta sig á þessari sölu og samhengi hennar þarf að spóla áratugi aftur í tímann, til þeirra ára í lok síðustu aldar Samband íslenskra samvinnufélaga var stærsta fyrirtæki Íslands.
Fjallað er um þessa sögu í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:Salan á Samskipum til spænska fyrirtækisins Boluda heyrir til tímamóta fyrir þetta næst stærsta skipafélag landsins. Ólafur Ólafsson hefur átt félagið að hluta til eða fullu leyti frá árinu 1993 og hefur ýmislegt gengið á hjá því á þessum tíma.
Kom í ljós að Ólafur var hluthafi
Upphaflega var Samskip skipadeildin í rekstri Sambands íslenskra samvinnufélaga en fyrirtækið var gert að sérstöku hlutafélagi árið 1991. Á þessum tíma hafði Sambandið lent í miklum skuldaerfiðleikum sem áttu rætur sínar að rekja til breyttra tíma í samfélaginu og breyttrar stöðu samvinnuhreyfingarinnar og kaupfélaga í landinu.
Eftir hlutafélagavæðingu skipadeildar Sambandsins, árið 1993, þegar Ólafur var 36 ára, varð hann forstjóri Samskipa. Úr varð að Landsbanki Íslands, sem þá var ríkisbanki, tók Samskip yfir upp í skuldir og finna þurfti nýja eigendur að fyrirtækinu til að halda því gangandi. Nýir hluthafar komu inn í hluthafahópinn. Þetta voru meðal annars Vátryggingafélag Íslands, Olíufélagið ESSO, Samvinnulífeyrissjóðurinn og þýskt skipafyrirtæki sem hét Bruno Bischoff.
Árið 1994 kom í ljós að Ólafur Ólafsson var meðhluthafi Bruno Bischoff í Samskipum og átti helminginn af þeim 29 prósenta hlut sem þýska fyrirtækið var skráð fyrir. Þetta hafði ekki legið fyrir fram að þessu. Þegar þetta kom fram í dagsljósið seldu nokkrir af meðhluthöfum hans, Jón Pálmason, sem er sonur Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaupa, og Gunnar Jóhannsson, seldu þá hlutabréf sín í Samskipum. Árið áður hafði það verið skilyrði þátttöku íslenskra fjárfesta í fjárfestingunni í Samskipum að þýska fyrirtækið yrði með í viðskiptunum.
Með tíð og tíma náði Ólafur svo að eignast Samskip en eftir því sem best er vitað var þessi leynihlutur hans með Bruno Bischoff sá fyrsti sem hann átti í félaginu. Samskip, undir stjórn Ólafs Ólafssonar, átti svo eftir að kaupa Bruno Bischoff í heild sinni árið 1998. Þetta var upphafið að útrás Samskipa til annarra landa líkt og Ólafur Ólafsson ræddi um í viðtali við fréttastofu RÚV árið 1999.
Fleiri dæmi um leynd
Eitt af því sem hefur ítrekað komið upp á viðskiptaferli Ólafs Ólafssonar, eftir að hann eignaðist Samskip til að byrja með í gegnum þetta þýska fyrirtæki, eru ítrekuð dæmi um leynd yfir viðskiptum sem hann tengist með eða í gegnum erlenda aðila.
Þegar einkavæðing Búnaðarbanka Íslands fór fram árið 2003 átti síðar eftir að koma í ljós að það var í reynd Ólafur Ólafsson sjálfur sem átti hlutabréf sem þýski bankinn Hauck og Aufhauser var sagður eiga. Þegar Búnaðarbankinn var seldur frá íslenska ríkinu var aðkoma þessa þýska banka að viðskiptunum talin hafa verið lykilatriði þegar S-hópurinn svokallaði keypti bankanaf íslenska ríkinu.
Í skýrslu sem rannsóknarnefnd Alþingis skrifaði árið 2017 um aðkomu þýska bankans að kaupunum var komist að þeirri niðurstöðu að þýski bankinn hefði aldrei í reynd verið hluthafi í bankanum.
Eftir að Búnaðarbankinn var einkavæddur árið 2003 sameinaðist hann Kaupþingi og starfaði undir því nafni fram að bankahruninu árið 2008. Ólafur Ólafsson var leiðandi hluthafi í bankanum á þessum tíma ásamt fjárfestingarfélaginu Exista. Í aðdraganda bankahrunsins árið 2008 kom Ólafur að Al Thani-viðskiptunum svokölluðu sem áttu síðar eftir að verða fræg vegna dóma sem féllu um þessi viðskipti. Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu árið 2015 að þessi viðskipti hafi verið sýndarviðskipti og markaðsmisnotkun.
Það eru því að minnsta kosti þrjú dæmi um það í viðskiptasögu Ólafs Ólafssonar að hann hafi komið að viðskiptum þar sem þáttakandi var erlendur þar sem eðli viðskiptanna var ekki með þeim hætti sem virtist vera til að byrja með.
Þetta er í fyrsta lagi þegar Ólafur byrjaði að eignast Samskip á sínum tíma, í öðru lagi þegar hann keypti Búnaðarbankann ásamt öðrum í byrjun aldarinnar og svo í þriðja lagi skömmu fyrir bankahrunið þegar fjárfesting katarska sjeiksins Al Thani í Kaupþingi reyndist vera sýndarviðskipti.
