Draumur breyttist í martröð þegar Haraldur olli bílslysi sem varð vini hans að bana

Maður sem varð valdur að banaslysi ungur að árum vonast til þess að reynsla hans verði til þess að fólk taki ekki áhættu í umferðinni. Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag.

Áherslan í ár er á unga ökumenn. Samkvæmt Samgöngustofu hefur fjórðungur landsmanna misst einhvern nákominn í umferðarslysi. Hraðakstur ungmenna er helsta orsök banaslysa ungs fólks.

Í gögnum lögreglu eru merki um aukna áhættuhegðun í þessum hópi. Innviðaráðherra segir stjórnvöld ætla að bregðast við þeirri þróun meðal annars með breytingu á umferðarlögum og fræðsluátaki.

Haraldur Már Haraldsson flutti ávarp við athöfn í tilefni dagsins. Hann sagði reynslusögu sína um hvernig hann hefði ungur að árum valdið banaslysi æskuvinar síns sökum hraðaksturs. Haraldur sagði mikilvægt að fólk hefði í huga, þegar það sest undir stýri, að það beri ekki aðeins ábyrgð á eigin lífi. Það þekki hann af eigin raun.

Minnist vinar síns á afmælisdag hans í dag

Þann 18. febrúar árið 2008 breyttist líf mitt að eilífu. Fimm dögum áður fékk ég bílprófið í fysta skipti. Loksins orðinn frjáls maður og langþráður draumur loksins orðinn að veruleika. Sá draumur breyttist hins vegar fljótt í martröð því þann 18. febrúar olli ég bílslysinu sem leiddi besta vin minn til dauða.

Haraldur segir næstu ár hafa einkennst af sorg, sektarkennd og sjálfshatri. Hann hafi oft óskað þess að geta skipt um stað við vin sinn sem hafi ekki fengið tækifæri til að eldast, en afmælisdagur hans sé einmitt í dag. Í ræðunni beindi Haraldur orðum sínum sérstaklega til nýrra ökumanna.

Berum ekki bara ábyrgð á eigin lífi

Þegar við setjumst undir stýri þá berum við ekki aðeins ábyrgð á eigin lífi. Við berum ábyrgð á fólkinu sem situr við hliðina á okkur, á fólkinu sem við mætum á veginum og á öllum þeim sem bíða eftir okkur þegar við komum heim.

Ein óskynsamleg ákvörðun geti leitt til þess að líf fjölskyldu breytist að eilífu.Ég get ekki breytt því sem gerðist og ég get ekki fengið Þorvald aftur en ég talað um það, ég get haldið minningu hans á lofti og ég get vonað að reynsla mín verði til þess að einhver hugsi sig tvisvar um áður en hann, hún eða hán tekur áhættu í umferðinni.