Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, var taggaður af varaþingmanni flokksins við auglýsingu erlends fyrirtækis í morgun.
Það eitt og sér er ekki í frásögur færandi en auglýsingin sýndi mynd af Sigurði Helga og föður hans Pálma Gunnarssyni tónlistarmanni. Búið var að eiga við myndina og klæða feðgana í nýjar peysur sem Facebook-síðan, sem er aðeins viku gömul, gefur sig út fyrir að selja. Sigurður segist ýmsu vanur enda sé hann opinber persóna en þetta tilfelli hafi komið illa við hann.
„Þetta var mynd af mér með pabba og bara mynd sem mér þykir svolítið vænt um af því við vorum þarna á Vopnafirði að veiða og þá varð þetta svona nærtækara.“
Þrautinni þyngra að fjarlægja myndina
Hann hafi eytt fyrriparti dags í að standa í stappi við Facebook til að láta fjarlægja myndina. Það hafi reynst þrautinni þyngra en að lokum tekist. Facebook-reikningurinn standi aftur á móti enn.
Sigurður segir allt á reikningnum gert með gervigreind. Hann viti ekki hvort tilgangurinn með notkun myndarinnar hafi verið að fá smelli eða hvort þeir sem standi á bak við hana séu hugsanlega að reyna að komast yfir kortaupplýsingar fólks.
Vill skoða höfundarrétt fólks á eigin andliti og rödd
Hann telur tilefni til þess að skoða á Alþingi hvort þörf sé á skýrari lögum og úrræðum til að vernda rétt einstaklinga til eigin ímyndar.
„Það er nú oft þannig við þetta starf að það er það sem maður hefur lent í sjálfur sem keyrir mann svolítið áfram“
Þá vilji hann einnig skoða ábyrgð samfélagsmiðla, einkum í tilfellum þar sem þeir taka við greiðslum fyrir auglýsingar sem kunna að brjóta gegn réttindum fólks. Danir hafi lagt fram frumvarp sem Sigurður hyggst kynna sér en það miðar að því að tryggja einstaklingum skýrari rétt yfir eigin andliti og rödd gagnvart stafrænum eftirlíkingum.
Hér á landi séu einnig breytingar á höfundalögum í undirbúningi sem þetta gæti fallið undir.
„Getum við komið því þar inn að við séum varin, það er að segja andlit okkar, rödd?“
Sigurður vakti athygli á atvikinu í færslu á Facebook sem má lesa í heild sinn hér að neðan:
